Ráðgjafarstofa heimilanna: Barnafólk á fertugsaldri verst statt 1. júlí 2010 13:58 Flestir sem sækja um aðstoð búa á höfuðborgarsvæðinu.
Árið 2009 var það umfangsmesta í sögu Ráðgjafarstofu um fjármál heimilanna. Alls bárust stofunni 1.623 umsóknir og fjölgaði umsóknum um rúmlega 750 frá fyrra ári eða um tæplega helming samkvæmt tilkynningu frá Ráðgjafastofunni. Í heild bárust 1.184 umsóknir frá fólki í leit að ráðgjöf vegna greiðsluerfiðleika og 439 umsóknir um aðstoð við gerð beiðna um heimild til að leita greiðsluaðlögunar fyrir dómi. Langflestir sem sóttu ráðgjöf eru búsettir á höfuðborgarsvæðinu eða 72% en 28% búa á landsbyggðinni. Meirihluti umsækjenda er barnafólk á fertugsaldri sem er á vinnumarkaði og býr í eigin húsnæði. Ástæður greiðsluerfiðleikanna stafa oftast af lækkun tekna en margir telja veikindi, offjárfestingu og afleiðingar bankahrunsins ástæðuna. Um 10% umsækjenda nefna vankunnáttu í fjármálum sem ástæðu greiðsluerfiðleika sinna. Heildarskuld meðalumsækjandans á árinu 2009 nemur rúmlega 31 milljón kr. Það er hækkun skulda um 120% frá fyrra ári. Vanskil aukast mikið milli ára eða um 99%. Bílalánin vega þar mest en aukning vanskila vegna þeirra nemur um 481% frá árinu 2008 til 2009. Þann 1. ágúst nk. verður Ráðgjafarstofa um fjármál heimilanna lögð niður og í hennar stað verður stofnað Embætti umboðsmanns skuldara. Hann mun vera skuldurum til aðstoðar. Í dag bíða um 500 mál úrlausnar hjá Ráðgjafarstofunni.
Mest lesið Hótar að svipta Rosie O'Donnell ríkisborgararétti Erlent Mörg hundruð börn hittist og drekki sig full í sumarpartýum Innlent Flestir ánægðir með Kristrúnu en fæstir Ingu Innlent Kallaði Kristrúnu „Trump okkar Íslendinga“ Innlent Kristrún og Guðrún mætast í Sprengisandi Innlent Hiti gæti náð 25 stigum í dag Veður Kim lofar Rússum „skilyrðislausum stuðningi“ Erlent Ingi Garðar er Reykvíkingur ársins Innlent Fjögur mál kláruð fyrir þingslit: „Skynsamleg lúkning sem forseti leggur til“ Innlent Fundu kannabisplöntur við húsleit Innlent Fleiri fréttir Ekki farið fram á gæsluvarðhald yfir fimmmenningunum Ingi Garðar er Reykvíkingur ársins Kallaði Kristrúnu „Trump okkar Íslendinga“ Kristrún og Guðrún mætast í Sprengisandi Flestir ánægðir með Kristrúnu en fæstir Ingu Fundu kannabisplöntur við húsleit Dettifoss komið til hafnar Mörg hundruð börn hittist og drekki sig full í sumarpartýum Ofbeldi í garð fangavarða eykst Hnífstungumaður úrskurðaður í gæsluvarðhald Fjögur mál kláruð fyrir þingslit: „Skynsamleg lúkning sem forseti leggur til“ Þinglokasamningur í höfn Þingfundi slitið eftir ítrekaðar frestanir og snörp orðaskipti Eldfimt ástand á þingi, árásir á fangaverði og full ungmenni á víðavangi Segir enga sérstaka ástæðu fyrir áhuga á 71. greininni Minnisblað Flokks fólksins: „Við þurfum að fá svar við þessu“ Þingfundur hafinn eftir ítrekaðar frestanir Dettifoss nálgast endamarkið Þurfi að taka á þeim sem telji sig geta keypt líkama annarra Hríðskotabyssa í poka kom Íslendingi á lista CIA Nafn mannsins sem lést í mótorhjólaslysinu Vonar að minnihlutinn sýni ábyrgð svo ekki þurfi að beita ákvæðinu aftur Telja jákvæðu skrefin of fá Sjálfvirk bílaþvottastöð opnuð á Selfossi Alvarlega særður eftir hnífstunguárás Mennirnir enn í haldi lögreglu Staðan á Alþingi og refsilaus vændiskaup Leggja til að veiðigjaldið verði innleitt í skrefum Hvaðan kemur „kjarnorkuákvæðið“? Þungt haldinn eftir árekstur á Hafnarfjarðarvegi Sjá meira