Innlent

Umræðum lokið - atkvæðagreiðsla klukkan fjögur

Þingmenn hafa nú lokið umræðum um hvort höfða beri málshöfðun gegn ráðherrum í hrunstjórninni svokölluðu. Katrín Júlíusdóttir iðnaðarráðherra var síðust á mælendaskrá og eftir það var þingfundi frestað. Forseti boðaði síðan til næsta fundar klukkan fjögur í dag og hefst hann á atkvæðagreiðslu um málið.

Atkvæðagreiðsla um ákærurnar gæti orðið tvísýn. Ljóst er að allir þingmenn Vinstri grænna og Hreyfingarinnar muni greiða atkvæði með ákærum, Sjálfstæðismenn á móti þeim, en öllu óljósara er hvernig atkvæði samfylkingar- og framsóknarþingmanna munu falla.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×