Innlent

Loka lauginni vegna ásóknar

Stykkishólmslaug hefur verið mjög vinsæl í sumar.
Stykkishólmslaug hefur verið mjög vinsæl í sumar.

Metaðsókn var í sundlaugina í Stykkishólmi í júlí síðastliðnum samanborið við síðustu ár. Alls komu 13.233 gestir í laugina í júlí síðastliðnum. Á sama tíma í fyrra voru þeir tæplega þrettán þúsund og árið þar á undan voru þeir rétt rúmlega níu þúsund. Þetta kemur fram í Stykkishólmspóstinum.

Þegar aðsóknin í sundlaugina hefur verið hvað mest hefur starfsfólk þurft að hleypa inn í hollum eða loka lauginni í tuttugu mínútur í senn. - kh




Fleiri fréttir

Sjá meira


×