Innlent

Launakostnaður lækkaður um milljarð

Jón Hákon Halldórsson skrifar
Björn Zoëga, forstjóri Landspítalans, segir að tekist hafi að spara um milljarð í launakostnaði. Mynd/ Pjetur.
Björn Zoëga, forstjóri Landspítalans, segir að tekist hafi að spara um milljarð í launakostnaði. Mynd/ Pjetur.
Launakostnaður á Landspítala hefur dregist saman um 973 milljónir króna á fyrstu átta mánuðum ársins miðað við sama tíma í fyrra. Þetta segir Björn Zoëga, forstjóri Landspítalans, í mánudagspistli sínum.

Björn segir að það hafi ekki einungis tekist að spara launakostnað heldur hafi spítalinn sparað um 10% í rafmagnsnotkun, 14% í heitu vatni, 33% í pappír, 30% í blekhylkjum í prentara og 30% í einnota eldhúsáhöldum. „Þetta er vægast sagt glæsilegur árangur, þökk sé mikilli og óeigingjarnri vinnu allra starfsmanna spítalans," segir Björn.

Björn segir að það hafi verið stöðug vinna allt þetta ár við að lækka kostnað spítalans sem hafi skilað umtalsverðum árangri. Sú vinna muni halda áfram og verða smám saman hluti af okkar reglubundnu verkefnum á hverju ári.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×