Innlent

Finnbogi stýrir nýjum sjóði

hillary Clinton
hillary Clinton

Finnbogi Jónsson hefur verið ráðinn framkvæmdastjóri Framtakssjóðs Íslands. Sjóðurinn var stofnaður af lífeyrissjóðum sem leggja sjóðnum til þrjátíu milljarða króna og mun sjóðurinn gegna veigamiklu hlutverki í endurreisn íslensks efnahagslífs með fjárfestingum í fyrirtækjum.

Finnbogi hefur mikla reynslu í íslensku atvinnulífi og síðustu ár hefur hann verið framkvæmdastjóri Nýsköpunarsjóðs atvinnulífsins. Finnbogi hefur jafnframt setið í stjórnum fjölmargra fyrirtækja. - shá




Fleiri fréttir

Sjá meira


×