Sundlaugin sögð vera óráðsía 25. september 2010 06:00 Heildarkostnaður við nýja sundlaug á Blönduósi verður um hálfur milljarður króna.Mynd/Guðmundur Haraldsson
Fulltrúar minnihluta S-lista Samfylkingarinnar í bæjarstjórn Blönduóss segja meirihluta L-listans leggja „blessun sína yfir stórfellda eyðslu umfram fjárheimildir“ með endurskoðun fjárhagsáætlunar fyrir árið 2010. „Fulltrúar S-lista mótmæla þessari óráðsíu með skattfé íbúa sveitarfélagsins harðlega“, segir í bókun S-listans. „Framúrkeyrsla á einum framkvæmdalið um 130 milljónir króna (87 prósent) á átta mánuðum er algerlega ólíðandi og ætti að kalla á sérstaka rannsókn á þeim embættisfærslum sem að baki liggja,“ segja S-listafulltrúarnir. Er þar vísað til þess að á þessu ári hafi átt að verja 150 milljónum króna til að ljúka byggingu sundlaugar. Talan hafi endað í 280 milljónum. „Þessi óráðsía, óvönduðu vinnubrögð og jafnvel í einhverjum tilvikum lögbrot í ráðstöfun fjármuna sveitarfélagsins lýsa virðingarleysi meirihlutans fyrir íbúum þess,“ segir S-listinn. Ágúst Þór Bragason, fulltrúi L-listans, segir að við gerð fjárhags-áætlunar í fyrrahaust hafi menn ekki haft yfirsýn yfir kostnaðinn, meðal annars þar sem verið var að byggja við eldra hús og hönnunarvinnu ólokið. Talan 150 milljónir hafi þó verið sett í áætlunina. „Síðan fjallaði bæjarstjórn um þetta á fundum á fyrri hluta ársins og tók ákvarðanir um búnað og annað sem var keypt.“ Ágúst minnir á að núverandi meirihluti hafi ekki tekið við fyrr en daginn áður en sundlaugin var opnuð um miðjan júní. Fyrri bæjarstjórn hafi staðið einhuga að framkvæmdunum. „Svo á að hengja nýkjörna fulltrúa. Mér finnst það ódýr málflutningur.“ Að sögn Ágústs gerði kostnaðar-áætlun á árinu 2008 ráð fyrir því að sundlaugin myndi í heild kosta 340 milljónir króna. Framreiknuð til dagsins í dag sé sú upphæð um 420 milljónir. Nú líti út fyrir að heildarkostnaður verði 490 til 500 milljónir. „Frávikið er 15 til 20 prósent frá því fyrir hrun. Það kalla ég ekki stórt frávik á svona stórri framkvæmd,“ segir Ágúst. - gar
Mest lesið Verkalýðsfélögin úrelt og þau hefði mátt leggja niður um aldamótin Innlent Þúsundir hermanna kallaðir heim frá Þýskalandi Erlent „Slátrarinn frá Bosníu“ við dauðans dyr Erlent Höfðinginn átti sig ekki á lokuninni Innlent Lífið umturnaðist í kjölfar slyssins Innlent Fjöldi viðbragðsbíla kom á vettvang falsboðs Innlent Gulu hjólunum stillt upp á slysstöðum Innlent „Dapurlegt pólitískt útspil“ Innlent Meirihlutinn fallinn og VG á þingi Innlent Þetta sé bæjarstjórn Kópavogs til skammar Innlent Fleiri fréttir „Flokkur fólksins tekur í rauninni út óánægju með ríkisstjórnina“ Óska þess að ákvörðun um spítalann liggi fyrir sem fyrst Meirihlutinn á þingi fallinn, gremja í Grímsey og risadagur í íþróttunum Gulu hjólunum stillt upp á slysstöðum Verkalýðsfélögin úrelt og þau hefði mátt leggja niður um aldamótin Beittir lögreglutökum eftir ógnandi tilburði í miðbæ Fjöldi viðbragðsbíla kom á vettvang falsboðs Meirihlutinn fallinn og VG á þingi Farfuglar koma marktækt fyrr til landsins en áður „Dapurlegt pólitískt útspil“ Höfðinginn átti sig ekki á lokuninni Myndaveisla: Verkalýðsdagurinn haldinn hátíðlegur Sinueldur í Grafarvogi Þetta sé bæjarstjórn Kópavogs til skammar Framboðum Miðflokksins fjölgar um átta milli kosninga Lífið umturnaðist í kjölfar slyssins Bein útsending: Verkalýðsdagurinn haldinn hátíðlegur Sendi ekki reikning og fær því ekki greitt Langhæsti styrkurinn fer til Eyja Vasaþjófnaður aukist að undanförnu „Bjóða fram“ Biðlistann í Reykjavík Ofurölvi reyndi að opna bíla í akstri „Við erum með lengri óskalista heldur en þetta“ Segist ekkert hafa fengið greitt: „Pólitískur hráskinnaleikur“ „Þetta er bara eins og að missa vini sína“ Andar köldu milli Viðreisnar- og Miðflokksmanna Föst í umferð í tæpa fjóra sólarhringa á ári og kostnaðurinn yfir hundrað milljarðar Banaslys í Skorradalsvatni Glæný könnun gæti varpað ljósi á meirihlutamyndun Hlaðvarpsstjórnendur fá nýjar leiðbeiningar Sjá meira