Innlent

Aurskriða lokaði veginum í Flateyjardal

Vegna aurskriðu er vegur númer F899 í Flateyjardal lokaður við Eyvindará. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Vegagerðinni. Í sömu tilkynningu eru ökumenn varaðir við truflun á umferð á Reykjanesbraut í dag.

Þar er unnið að fræsingu á frá Krýsuvíkurvegi að Vatnleysustrandavegi og frá Hafnarfjarðarvegi að Vatnleysustrandavegi. Þrengingar verða meðan á framkvæmd stendur og verður tímabundin truflun á umferð til hádegis.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×