Innlent

Mannréttindaráð styður Orator í ráðgjafastörfum

Mannréttindaráð Reykjavíkur samþykkti á fundi sínum í gærdag að styðja Orator félag laganema til að veita lögfræðilega ráðgjöf en hún mun fara fram m.a. á bókasöfnum og þjónustumiðstöðvum borgarinnar.

Ráðgjöfinni verður sinnt af Orator, félagi laganema, undir leiðsögn lögfræðings. Ráðgjöfin verður veitt vikulega fram á vorið til reynslu og verður borgarbúum að kostnaðarlausu. Mannréttindastjóra hefur verið falið að útfæra tillöguna frekar.

Marta Guðjónsdóttir, formaður mannréttindaráðs, segir að með samþykktinni sé verið að koma til móts við borgarbúa í ljósi versnandi skuldastöðu heimilanna. „Okkur finnst þetta mjög þarft verkefni af hálfu Orator og því ákváðum við að styðja það heilshugar," segir Marta.








Fleiri fréttir

Sjá meira


×