Innlent

Enn leitað að hnífamanni í Kópavogi

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu leitar enn að manni, sem rændi peningum á pitsustað við Núpalind í Kópavogi á níunda tímanum í gærkvöldi, eftir að hafa ógnað stafsmanni með eggvopni.

Starfsmaðurinn telur að ræninginn hafi verið um 170 sentímetrar á hæð. Hann var með lambhúshettu og klæddur í hettupeysu og í bláum skopparabuxum.

Starfsmanninum var illa brugðið og þáði hann áfallahjálp.








Tengdar fréttir

Vopnað rán í Kópavogi

Vopnað rán var framið á pizzastað í Núpalind þegar klukkan var korter gengin í níu í kvöld. Samkvæmt upplýsingum frá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu vatt karlmaður sér inn á pizzastaðinn og ógnaði starfsstúlku með einhverskonar eggvopni. Hann hafði á brott með sér peninga en ekki hafa fengist upplýsingar um það hversu miklir þeir voru. Ræningjans er nú leitað.

Starfsstúlkan fékk áfallahjálp

„Það stökk hérna inn ungur maður og ógnaði starfsstúlkunni með hníf og vildi peningana sem hann og fékk," segir Guðmundur Arnfjörð, eigandi Pizzunar í Núpalind í Kópavogi.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×