Stefna að sameiningu við Garðabæ 5. júní 2010 06:00 Snorri Finnlaugsson, Kristinn Guðlaugsson, Kjartan Örn Sigurðsson og Hjördís Jóna Gísladóttir úr Sjálfstæðisflokki mynda meirihluta ásamt Einari Karli Birgissyni úr Framsóknarflokki og Guðmundi G. Gunnarssyni af L-lista. Fréttablaðið/Valli
Þrátt fyrir að Sjálfstæðisflokkur hafi fjóra af sjö bæjarfulltrúum á Álftanesi og þar með meirihluta í bæjarstjórn hefur flokkurinn myndað meirihluta með bæjarfulltrúa Framsóknarflokks og bæjarfulltrúa L-lista. „Með aukinni samvinnu í bæjarstjórn eru þeir sammála um að hagur og velferð íbúanna verði tryggður á sem bestan hátt, meðal annars með aðgerðum sem stuðla að því að álögur á íbúa lækki sem allra fyrst,“ segir í sameiginlegri yfirlýsingu bæjarfulltrúanna. Álftaneslistinn, sem var með meirihluta í bæjarstjórn Álftaness þar til í fyrrahaust, fékk aðeins einn bæjarfulltrúa kjörinn og er hann eini bæjarfulltrúinn sem ekki er með í nýja meirihlutanum. Sá er Sigurður Magnússon, fyrrverandi bæjarstjóri. Samkvæmt yfirlýsingu nýja meirihlutans verður leitað eftir sameiningu Álftaness við Garðabæ. Ráðningarsamningur við Pálma Þór Másson bæjarstjóra verður framlengdur út þetta ár. „Fyrir fund í bæjarráði og bæjarstjórn munu verða undirbúningsfundir þessara aðila með það að markmiði að auka samvinnu og gera bæjarráðs- og bæjarstjórnarfundi skilvirkari,“ segir nýi meirihlutinn sem kveðst munu endurskoða yfirlýsingu sína þegar fjárhaldsstjórn hefur lokið sinni vinnu. Auk þess sem Sjálfstæðisflokkur á fjóra fulltrúa í bæjarstjórn hefur fulltrúi L-listans, Guðmundur G. Gunnarsson, verið bæjarfulltrúi flokksins þar til nú að hann bauð sig fram undir merkjum L-lista eftir að hafa verið hafnað í prófkjöri. - gar
Mest lesið Ákvörðun dómsmálaráðherra gríðarleg vonbrigði Innlent Lögreglan lýsir eftir Hebu Ýr Innlent Enn að jafna sig eftir stunguárás: „Þeir eru miklu yngri en réðu samt ekkert við 43 ára mann“ Innlent Öll tölfræði um málþófið á einum stað: Íslandsmet á næsta sólarhring Innlent Yfir hundrað látnir í Texas Erlent „Þetta er bara hálfkák og ekkert annað“ Innlent Skiltið hluti af stærra vandamáli sem dragi úr lífsgæðum Innlent „Við sáum að veðrið var best fyrir austan þannig við drifum okkur austur“ Veður „Kemur ekki til greina að fresta þessu máli“ Innlent Fimm grunuð um að ráðast á mann sem kom öðrum til bjargar Innlent Fleiri fréttir Ákvörðun dómsmálaráðherra gríðarleg vonbrigði Lögreglan lýsir eftir Hebu Ýr Öll tölfræði um málþófið á einum stað: Íslandsmet á næsta sólarhring „Þetta er bara hálfkák og ekkert annað“ Skiltið hluti af stærra vandamáli sem dragi úr lífsgæðum Spyr hvort berja megi blaðamenn í ljósi sýknudómsins Enn að jafna sig eftir stunguárás: „Þeir eru miklu yngri en réðu samt ekkert við 43 ára mann“ Fjársvelt geðheilbrigðisúrræði og boltaleikjabann „Kemur ekki til greina að fresta þessu máli“ Fimm grunuð um að ráðast á mann sem kom öðrum til bjargar Þrír milljarðar til viðbótar í viðhald vega Sjö ára dómur fyrir að stinga tvo: Hittu árásarmanninn í fyrsta skipti þessa nýársnótt Vill vindorkuver í Garpsdal og breytir tillögu stjórnar Tugir með magapínu eftir þríþraut við Laugarvatn „Við erum með háskólakerfi sem er fjármagnað undir OECD meðaltali“ Rembihnútur á þinginu en örþrifaráð ekki til umræðu Ákvörðun saksóknara sendi undarleg skilaboð Þinglok ekki í augnsýn og háskólarnir undirfjármagnaðir Grunaðir um að stinga mann í rassinn að tilefnislausu Ný kort sýna hvernig almyrkvinn verður á Íslandi Bandarískur kjarnorkukafbátur í heimsókn Formenn þingflokka halda spilunum þétt að sér Skjálfti upp á 3,4 í morgun á Suðurlandi Ekki efni til að ákæra þá sem fötluð kona var látin hafa samræði við Hiti nær 22 stigum fyrir austan Fjarlægðu „óvelkominn aðila“ af öldrunarheimili Rak í rogastans þegar hann las viðtalið við Bubba Árbæingar áhyggjufullir vegna umdeildra framkvæmda Aldrei séð annan eins hraðakstur eftir þrjátíu ár í lögreglunni Metfjöldi á biðlista og mögulega þarf að vísa frá Sjá meira
Enn að jafna sig eftir stunguárás: „Þeir eru miklu yngri en réðu samt ekkert við 43 ára mann“ Innlent
Enn að jafna sig eftir stunguárás: „Þeir eru miklu yngri en réðu samt ekkert við 43 ára mann“ Innlent