Innlent

Nýr efnahagsráðgjafi ráðinn

Sigurður Snævarr.
Sigurður Snævarr.

Forsætisráðherra hefur ráðið Sigurð Snævarr, hagfræðing, í stöðu ráðgjafa á sviði efnahags- og atvinnumála og hefur hann störf í dag. Fimm umsóknir bárust um stöðuna samkvæmt fréttatilkynningu á heimasíðu forsætisráðuneytisins.

Sigurður Snævarr lauk Fil.kand prófi frá Háskólanum í Lundi í Svíþjóð í hagfræði árið 1978 og meistaraprófi í sömu grein frá London School of Economics árið 1979.

Hann stundaði rannsóknir við Queen Mary College í London árin 1979-1981. Sigurður var hagfræðingur og síðar forstöðumaður hjá Þjóðhagsstofnun frá 1982 til 2001, er hann var skipaður borgarhagfræðingur í Reykjavík.

Sigurður hefur verið stundakennari og lengst af aðjúnkt við Háskóla Íslands frá 1982.

Ráðningartími Sigurðar er til tveggja ára frá og með 1. september 2010 að telja.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×