Innlent

Þrjár líkamsárásir tilkynntar lögreglunni

Jón Hákon Halldórsson skrifar
Mynd/ Pjetur.
Mynd/ Pjetur.
Þrjár líkamsárásir voru tilkynntar lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu í gærkvöld og í nótt. Engin þeirra er alvarleg.

Þá var tilkynnt um 8 þjófnaði en í þremur tilfellum var um að ræða innbrot og þjófnaði úr bifreiðum, í tveimur tilfellum var um að ræða þjófnaði í verslunum, í tveimur tilfellum var um að ræða þjófnaði í heimahúsum og í einu tilfelli innbrot í skóla. Þar var um að ræða Hjallaskóla í Kópavogi þar sem skjávarpi var tekinn.

Þá urðu sex árekstrar á höfuðborgarsvæðinu í gærkvöldi og í nótt en ekki urðu alvarleg slys á fólki í þeim.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×