Innlent

Íslensk kona stjórnar hjálparstarfi á Haiti

Íslensk kona, Hlín Baldvinsdóttir, gegnir lykilhlutverki á vegum Alþjóða Rauða krossins á Haiti við að skipuleggja flóttamannabúðir fyrir yfir tvöhundruð þúsund manns sem misstu heimili sín í jarðskjálftanum. Hún segir margra ára hjálparstarf framundan.

Flugvélar streyma inn með hjálpargögn; lyf, læknisvörur, vatn, matvæli og aðrar nauðþurftir, en einnig búnað til að koma upp húsaskjóli og salernisaðstöðu til að mæta öðrum grunnþörfum. Þessu er hlaðið á flutningabíla, en þá kemur að fólki eins og Hlín Baldvinsdóttur að reyna að koma reglu á hlutina í allri ringulreiðinni svo hjálpin skili sér til fólksins.

Hlín hefur tekið að sér að vera fjármálastjóri yfir neyðarhjálp Alþjóða Rauða krossins á hamfarasvæðinu. Hlín segist aldrei hafa upplifað annað eins í tíu ára hjálparstarfi fyrir samtökin og sjálf hefur hún þurft að sofa úti undir berum himni.

Íslensku björgunarsveitarmennirnir hafa heldur aldrei séð svo umfangsmiklar neyðaraðgerðir. Meðlimir sveitarinnar hafa í ellefu ára sögu hennar verið sendir fjórum sinnum á erlend hamfarasvæði. Gísli Rafn Ólafsson, stjórnandi íslenska Alþjóðabjörgunarsveitarinnar, segir að þetta slái öllu við að stærð og umfangi, enda séu þetta einhverjar mestu hamfarir sem riðið hafi yfir í mörghundruð ár. Í tjaldbúðunum, sem þeir tóku þátt í að stjórna og skipuleggja fyrir rústabjörgunarmenn á flugvallarsvæðinu, voru 50 björgunarsveitir, 1.800 björgunarsveitarmenn og 160 hundar.

Hjálparstarfið framundan er yfirþyrmandi fyrir Hlín og samstarfsfólk hennar hjá Rauða krossinum. Búið er að koma upp 380 búðum fyrir yfir 200 þúsund manns sem misstu heimilin sín. Áætlað er að Hlín verði einn mánuð á svæðinu en hún kveðst tilbúin að vera lengur. Þarna sé framundan margra ára hjálparstarf.










Fleiri fréttir

Sjá meira


×