Íslensk kona stjórnar hjálparstarfi á Haiti 24. janúar 2010 18:45
Íslensk kona, Hlín Baldvinsdóttir, gegnir lykilhlutverki á vegum Alþjóða Rauða krossins á Haiti við að skipuleggja flóttamannabúðir fyrir yfir tvöhundruð þúsund manns sem misstu heimili sín í jarðskjálftanum. Hún segir margra ára hjálparstarf framundan. Flugvélar streyma inn með hjálpargögn; lyf, læknisvörur, vatn, matvæli og aðrar nauðþurftir, en einnig búnað til að koma upp húsaskjóli og salernisaðstöðu til að mæta öðrum grunnþörfum. Þessu er hlaðið á flutningabíla, en þá kemur að fólki eins og Hlín Baldvinsdóttur að reyna að koma reglu á hlutina í allri ringulreiðinni svo hjálpin skili sér til fólksins. Hlín hefur tekið að sér að vera fjármálastjóri yfir neyðarhjálp Alþjóða Rauða krossins á hamfarasvæðinu. Hlín segist aldrei hafa upplifað annað eins í tíu ára hjálparstarfi fyrir samtökin og sjálf hefur hún þurft að sofa úti undir berum himni. Íslensku björgunarsveitarmennirnir hafa heldur aldrei séð svo umfangsmiklar neyðaraðgerðir. Meðlimir sveitarinnar hafa í ellefu ára sögu hennar verið sendir fjórum sinnum á erlend hamfarasvæði. Gísli Rafn Ólafsson, stjórnandi íslenska Alþjóðabjörgunarsveitarinnar, segir að þetta slái öllu við að stærð og umfangi, enda séu þetta einhverjar mestu hamfarir sem riðið hafi yfir í mörghundruð ár. Í tjaldbúðunum, sem þeir tóku þátt í að stjórna og skipuleggja fyrir rústabjörgunarmenn á flugvallarsvæðinu, voru 50 björgunarsveitir, 1.800 björgunarsveitarmenn og 160 hundar. Hjálparstarfið framundan er yfirþyrmandi fyrir Hlín og samstarfsfólk hennar hjá Rauða krossinum. Búið er að koma upp 380 búðum fyrir yfir 200 þúsund manns sem misstu heimilin sín. Áætlað er að Hlín verði einn mánuð á svæðinu en hún kveðst tilbúin að vera lengur. Þarna sé framundan margra ára hjálparstarf.
Mest lesið Ítreka yfirráð yfir Falklandseyjum eftir hótun Bandaríkjamanna Erlent Fjölgar í hópi sakborninga og ráðist í húsleit Innlent Kosningaspá Vísis: Líkur Alberts aukast en Bjarnveigar dvína Innlent Handtekinn eftir að hafa valdið umferðarslysi Innlent Netanjahú greindist með krabbamein Erlent Hlýtt í dag en kuldi í kortunum Veður Bilið á milli turnanna breikkar Innlent Segja engan fund á dagskrá Erlent Vesturlönd tali opinskátt um fyrirætlað stríð við Rússland Erlent „Viðreisn er í algjörri lykilstöðu“ Innlent Fleiri fréttir Kosningaspá Vísis: Líkur Alberts aukast en Bjarnveigar dvína Handtekinn eftir að hafa valdið umferðarslysi Fjölgar í hópi sakborninga og ráðist í húsleit „Viðreisn er í algjörri lykilstöðu“ Bilið á milli turnanna breikkar Vendingar í borginni og tónleikar í heimahúsum Fimm bíla árekstur á Reykjanesbraut Listaverkið muni auka öryggi og vernda náttúruna á svæðinu Sinueldur kviknaði við bensínstöð Safna gögnum um ferðamanninn og meta stöðuna daglega Bein útsending: Þorgerður situr fyrir svörum um þjóðaratkvæðagreiðsluna Fékk í skrúfuna skammt frá landi Hvarf Hákonar á borði ríkislögreglustjóra Raforkureikningur í dreifbýli gæti lækkað strax í júlí Leita íslensks manns í Búdapest og ráðherra boðar jöfnun á raforkukostnaði Réðu aftur starfsmann sem var rekinn í siðanefndarfári Engin ákvörðun tekin eftir uppsögn dagdvalarsamnings Alvarlegt slys þegar ekið var á aldraða konu Starfsfólki MAST ógnað: „Ég veit hvar þú átt heima“ Fullyrðingar um ETS-kerfi og strandsiglingar standast ekki Hákon Þór hvarf sporlaust í Búdapest Sigrún Helga nýr forseti Röskvu Reykur yfir Keflavíkurflugvelli reyndist vera æfing Berserksgangur á gististað Farþegar sjá ekki fólkið sem gegnumlýsir farangurinn Vekur spurningar um hugsanlega meðferð við heilabilun Valdimar Örnólfsson er látinn Nýr sæstrengur frá Skotlandi í bígerð Sjávarútvegsstjórinn segir ESB opið fyrir undanþágum Deiluefni jafnað við jörðu í Kópavogi Sjá meira