Innlent

Viðbragðsáætlun sett fram vegna niðurskurðar

Myndin er úr safni.
Myndin er úr safni.

Félag íslenskra hjúkrunarfræðinga hefur sett fram viðbragðsáætlun vegna þess mikla niðurskurðar sem boðaður hefur verið á heilbrigðisstofnunum landsins og fjöldauppsagna sem reikna má með að gripið verði til, ef fjárlagafrumvarpið verður að lögum. Þetta kemur fram í tilkynningu frá félaginu.

Þar segir ennfremur að sviðstjóri kjara- og réttindasviðs félagsins verður í nánu samstarfi við trúnaðarmenn hjúkrunarfræðinga á hverjum stað. Fulltrúar svæðisdeilda í stjórn félagsins verða tengiliðir við stjórnina.

Þá eru hjúkrunarfræðingar hvattir til að leita til þessara aðila um upplýsingar og aðstoð.

Formaður félagsins og sviðstjóri kjara- og réttindasviðs munu funda með hjúkrunarfræðingum um allt land og veita einstaklingsráðgjöf þegar ljóst verður til hvaða aðgerða gripið verður á hverri stofnun. Fundaáætlunin verður auglýst síðar.

Hér fyrir neðan er ályktun stjórnar Fíh.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×