Innlent

Spáð bongóblíðu um helgina

Fallegt haustveður.
Fallegt haustveður. Mynd / Stefán

Ekkert lát virðist vera á einhverju lengsta og hlýjasta sumri hérlendis í manna minnum og lofar veðurspá helgarinnar góðu. Þannig spáir Veðurstofan allt að 13-14 stiga hita í dag, bæði sunnan- og vestanlands, og einnig á Mið-Norðurlandi.

Þá gera spákort Veðurstofunnar ráð fyrir enn betra veðri á morgun, sunnudag, og að hitinn geti þá farið allt upp í 19 stig í Eyjafirði um miðjan dag og að hann fari víða í 14-16 stig.

Á miðjum Sprengisandi er meira að segja spáð allt að 13 stiga hita á morgun.

Um leið er spáð stilltu og léttskýjuðu veðri í öllum landshlutum. Það lítur því út fyrir að þessi helgi, þótt nú sé komið fram undir miðjan október, verði í líkingu við bestu útvistarhelgar að sumri.

Hitatölur morgunsins gefa forsmekkinn að því sem koma skal því nú fyrir hádegi var hlýjast á landinu á Vatnsskarðshólum í Mýrdal, 13,2 gráður, og á Reykjavíkurflugvelli, 12,4 gráður.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×