Læknar sprengdu fjárlögin 9. október 2010 08:45 Það var „algerlega óraunhæft“ án leiðsagnar heilbrigðisráðuneytisins að krefjast þess að Sjúkratryggingar lækkuðu lækniskostnað um þriðjung, segir Ríkisendurskoðun. Bull, svarar fyrrverandi heilbrigðisráðherra.
Kostnaður Sjúkratrygginga Íslands vegna sérfræðilækna stefnir í að vera 37 prósentum hærri í ár en fjárlög gera ráð fyrir. Munurinn er 1.600 milljónir króna. Ríkisendurskoðun segir að þó að Sjúkratryggingar nái að spara á ýmsum sviðum verði umframeyðslan 1.200 milljónir króna í ár enda verði kostnaður við sérfræðilækna 5.900 milljónir króna en ekki 4.300 milljónir eins og segir í fjárlögum. Álfheiður Ingadóttir, fyrrverandi heilbrigðisráðherra, segir mikið hafa verið reynt að semja við sérgreinalækna um lækkun. „En því miður var það algerlega árangurslaust. Það var enginn vilji á þeim bænum til að taka þátt í því að koma Íslandi út úr þessu skuldafeni," segir Álfheiður. Í svari til Ríkisendurskoðunar segir heilbrigðisráðuneytið að gott samstarf við sérfræðilækna hefði verið forsenda lækkunar enda hafi verið í gildi samningur við læknana. Ríkisendurskoðun segir heilbrigðisráðuneytinu hafa verið fullljóst við fjárlagagerðina að áætlaður 3,9 milljarða sparnaður næðist ekki nema sérfræðilæknar féllust á að lækka gjaldskrá mjög mikið eða til kæmu kerfisbreytingar. „Krafa um að Sjúkratryggingar Íslands næðu fram nærri þriðjungs lækkun lækniskostnaðar án slíkra breytinga, skýrrar stefnumótunar og leiðsagnar ráðuneytisins var því algerlega óraunhæf," segir Ríkisendurskoðun. „Þetta er náttúrlega bara bull," segir fyrrverandi heilbrigðisráðherra. „Í fyrsta lagi er það Alþingi sem setti þessa sparnaðarkröfu á þjónustu sérfræðilækna. Í öðru lagi reyndi ráðuneytið ítrekað, og það ætti ríkisendurskoðanda að vera ljóst, að ná samkomulagi við sérgreinalækna um lækkun." - gar
Mest lesið „Svolítið súrt þegar við erum búin að vera að byggja upp þarna flotta aðstöðu“ Innlent Sárkvalin og þurfti að borga eina og hálfa milljón fyrir aðgerð Innlent „Er löggjafarvaldið sofandi á verðinum?“ Innlent Blöskrar áfengisauglýsingar RÚV Innlent Einn í gæsluvarðhaldi vegna tengsla sinna við innbrotahrinu Innlent Galið kerfi, hatur á samfélagsmiðlum og boltastemning í beinni Innlent Slasaðist alvarlega við heyskap Innlent Brotist inn í þrjá gáma og dýr verkfæri tekin ófrjálsri hendi Innlent Nálægt því að útrýma moskítóflugu á Suðurlandi Innlent Stórbruni í Drammen og dularfull staða moskítóflugunnar Innlent Fleiri fréttir Hvassviðri hefur sett strik í reikninginn á Bræðslunni Flúðu heimili sitt vegna gróðurelda: „Þetta verður ekki fallegt, fjallið er allt brunnið“ Þúsund sjúkraflug á árinu: „Fyrsta skipti sem við brjótum þann múr“ Bráð veikindi og alelda bíll við Kambana Komst undan ásamt fjölskyldunni „Við ákváðum að snúa bara vörn í sókn“ Fæðingardeildin hafi gleymst í hita leiksins Eldur í sumarbústað við Suðurlandsveg Þúsund ára gömul mynt fannst í gamalli verbúð Íslendingur í grennd við Madríd og met í sjúkraflugferðum Fleiri en þeir sem tókust á lentu í átökum ungmenna Áttu eitthvað vantalað við manninn sem endaði fram af svölunum Ari úrskurðaður í gæsluvarðhald á Kýpur Fleygt fram af svölum á fyrstu hæð fjölbýlishúss Eigi ekki að kosta milljónir króna að klæðast landsliðsbúningnum Skynet langt undan en íslensk stjórnvöld þurfa að vera undirbúin „Klappað eins og það væri stórstjarna að koma inn“ Óttast að „bottar“ muni ýta undir ágreining í aðdraganda atkvæðagreiðslu Íslensk hjón þurft að flýja undan gróðureldum á Spáni Báti var siglt yfir kajakræðara Kvöldfréttir í heild sinni „Ég hef aldrei lent í öðru eins“ Fimm fluttir til aðhlynningar eftir árekstur Skipverjarnir áttu að fá 2,5 milljónir króna á haus Endurkoma Herjólfs vekur upp ýmsar spurningar Standa með félagsmanni sem var sviptur frelsi Íslendingur á Benidorm stöðvaður eftir tíu daga svikahrinu Halda samráðsfund vegna innbrotahrinu Auka nákvæmni rauntímaupplýsinga Vara við hviðum á landinu suðaustanverðu Sjá meira