Elliði Vignisson: Ríkisstjórnin hefur ekki lengur umboð þjóðarinnar Sigríður Mogensen skrifar 9. október 2010 12:16 Elliði Vignisson.
Bæjarstjóri Vestmannaeyja segir að ríkisstjórnin hafi ekki umboð frá þjóðinni og þurfi að fara frá. Stjórnvöld ætli að leggja niður heilbrigðisþjónustu á landsbyggðinni á meðan enn séu góðærisbitar í fjárlögunum sem fyrst þurfi að taka á. Elliði Vignisson, bæjarstjóri Vestmannaeyja, segir að á annað þúsund manns hafi tekið þátt í mótmælum þar í gær. Um sé að ræða fjölmennasta borgarafund sem haldinn hefur verið í eyjum. Elliði var ómyrkur í máli í ræðu sinni á fundinum í gær. „Við stöndum frammi fyrir því vandamáli að það var góðærisgeðveiki innleidd í ríkisfjármálin og á því þarf að taka. Staðan hins vegar núna er sú að þessi ríkisstjórn er í reynd löngu farin frá," segir Elliði. Hann segir að ríkisstjórnin hafi ekki umboð frá þjóðinni lengur. „Og þá breytir einu hversu gott fólk þarna er, á meðan ríkisstjórn ekki hefur umboð til að stjórna landinu verður hún að fara frá, annars verður skaðinn meiri en hann annars þyrfti að vera," segir hann. Elliði segir að fjárlögin fyrir næsta ár séu illa unnin: „Þau eru algjörlega óunnin, þetta er niðurskurður sem er úr lausu lofti gripin, það er verið að leggja niður heilbrigðisþjónustu á meðan enn eru þarna góðærisbitar sem fyrst þarf að takast á við. Við erum 300 þúsund manna fiskveiðiþjóð, og við verðum að haga okkur samkvæmt því. Og við verðum að fá ríkisstjórn sem skilur það að við erum 300 þúsund manna fiskveiðiþjóð, við getum boðið upp á góða heilbrigðisþjónustu, góðar samgöngur, löggæslu, menntun og fleira en það verður að taka góðærið út úr fjárlögunum og ef þessi ríkisstjórn hefur ekki skilning á því þá verður hún að finna sér eitthvað annað að gera en að stjórna landinu, hún hefur ekki umboð til þess," segir Elliði að lokum.
Mest lesið Lífið umturnaðist í kjölfar slyssins Innlent Sendi ekki reikning og fær því ekki greitt Innlent Banaslys í Skorradalsvatni Innlent Þetta sé bæjarstjórn Kópavogs til skammar Innlent Höfðinginn átti sig ekki á lokuninni Innlent „Dapurlegt pólitískt útspil“ Innlent Ofurölvi reyndi að opna bíla í akstri Innlent Safna í sérstakt sjóherlið á Norðurslóðum Erlent Langhæsti styrkurinn fer til Eyja Innlent Vasaþjófnaður aukist að undanförnu Innlent Fleiri fréttir Farfuglar koma marktækt fyrr til landsins en áður „Dapurlegt pólitískt útspil“ Höfðinginn átti sig ekki á lokuninni Myndaveisla: Verkalýðsdagurinn haldinn hátíðlegur Sinueldur í Grafarvogi Þetta sé bæjarstjórn Kópavogs til skammar Framboðum Miðflokksins fjölgar um átta milli kosninga Lífið umturnaðist í kjölfar slyssins Bein útsending: Verkalýðsdagurinn haldinn hátíðlegur Sendi ekki reikning og fær því ekki greitt Langhæsti styrkurinn fer til Eyja Vasaþjófnaður aukist að undanförnu „Bjóða fram“ Biðlistann í Reykjavík Ofurölvi reyndi að opna bíla í akstri „Við erum með lengri óskalista heldur en þetta“ Segist ekkert hafa fengið greitt: „Pólitískur hráskinnaleikur“ „Þetta er bara eins og að missa vini sína“ Andar köldu milli Viðreisnar- og Miðflokksmanna Föst í umferð í tæpa fjóra sólarhringa á ári og kostnaðurinn yfir hundrað milljarðar Banaslys í Skorradalsvatni Glæný könnun gæti varpað ljósi á meirihlutamyndun Hlaðvarpsstjórnendur fá nýjar leiðbeiningar Urðu eftir í Flatey á meðan Baldur sigldi suður Halla fagnaði áttræðum Karli Gústafi Sömdu um stækkun á Fylkisseli Kannast ekki við meint rán í Lágafellskirkju Ákærður fyrir að eitra fyrir samstarfsfélaga með kannabis Tjáir sig ekki um greiðslur frá Rúv en boðar yfirlýsingu Skipulagt niðurbrot á réttindum launafólks hafi náð til Íslands „Konur upplifa ekki öryggi í íslensku samfélagi“ Sjá meira