Innlent

Þarf að leggja grunn að nýrri þjóðfélagssátt

Bjarni Benediktsson.
Bjarni Benediktsson.

Bjarni Benediktsson, formaður Sjálfstæðisflokksins, segir að leggja þurfi grunn að nýrri þjóðfélagssátt.

Í viðtali við Morgunblaðið í dag leggur Bjarni til að mynduð verði ný ríkisstjórn um afmörkuð verkefni sem starfi í tiltekinn tíma.

Bjarni segir að ríkisstjórnin hafi fengið í vöggugjöf ríkan skilning á því að hún væri að takast á við erfitt verkefni. Henni hafi hins vegar mistekist í þeim efnum.

Sjálfstæðisflokkurinn ætlar að endurnýja tillögur sínar í efnahagsmálum sem snúa að því að efla atvinnulífið, bæta stöðu heimilanna, lækka skatta og skapa atvinnulífinu traustan grundvöll.

Bjarni segist ekki hafa talað fyrir því sem fyrsta kosti að fara í almenna skuldalækkun en í ljósi aðstæðna þurfi að skoða þann kost betur.

Niðurfærsla skulda heimilanna sé neyðarúrræði þegar sértækar aðgerðir dugi ekki til.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×