Innlent

Gistu í fangageymslum - á sitthvorum forsendunum þó

Þrír ungir menn fengu að gista fangageymslur lögreglunnar á Akureyri í nótt. Mennirnir voru mjög ölvaðir og tóku ekki tiltali lögreglunnar að sögn varðstjóra lögreglunnar á Akureyri. Þar að auki höfðu þeir lent í stympingum fyrr um kvöldið.

Nóttin gekk að öðru leytinu vel á Akureyri. Að sögn varðstjóra var til að mynda enginn stöðvaður fyrir ölvunarakstur.

Þá var einnig mjög rólegt hjá lögreglunni í Reykjavík en tveir menn gistu fangageymslur lögrelgunnar. Þeir, ólíkt félögunum á Akureyri, óskuðu sjálfir eftir húsaskjólinu.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×