Krakkarnir í sviðsljósinu næstu tvö sumur 2. júní 2010 04:00 Geir Þorsteinssson, formaður KSÍ, og Ari Edwald, forstjóri 365 miðla. Fréttablaðið/pjetur
Fótboltakrakkarnir á Íslandi verða í sviðsljósinu á Stöð 2 Sport næstu tvö sumur eftir að Stöð 2 og KSÍ gerðu með sér samkomulag um samstarf þar sem markmiðið er að stórauka stuðning og umfjöllun um fótboltaiðkun æskunnar. Samningurinn var undirritaður í gær og í honum felst meðal annars að Stöð 2 Sport skuldbindur sig til að minnsta kosti 35 beinna útsendinga frá leikjum í Pepsi-deild karla, fimm leikja í Visa-bikarkeppni karla, útsendinga frá útileikjum A-landsliðs karla og vináttulandsleikja þess á Íslandi. Stöð 2 Sport hefur gert vel í að sýna frá íslenska fótboltanum undanfarin ár en nú ætla menn þar á bæ að gera enn betur og þá sérstaklega að fjalla mun meira um fótboltaiðkun yngri flokka hér á landi. Stöð 2 mun fjalla ítarlegar um sumarmótin vinsælu, sem stöðin hefur þegar gert góð skil í sérstökum þáttum undanfarin sumur. Að auki verða framleiddir og sýndir á Stöð 2 Sport vandaðir þættir um fótboltaiðkun ungs fólks og munu sportstöðvar Stöðvar 2 einnig taka að sér framleiðslu og sýningar á kennslumyndböndum í boltatækni. „Aukin þáttagerð tengd iðkun ungmenna er liður í áherslubreytingum á Sportstöðvunum þar sem meiri áhersla er lögð á fjölskylduefni samhliða útsendingum frá stærstu íþróttaviðburðum hér á landi og um heim allan. Okkur rennur líka blóðið til skyldunnar því að niðurstöður nýlegrar könnunar sýna fram á að Sportstöðvarnar höfða meira til fjölskyldna en við gerðum okkur grein fyrir. Sama könnun leiddi í ljós að það er vöntun á því efni sem við erum að leggja meiri áherslu á. Það má því segja að leiðir okkar og KSÍ liggi saman að því markmiði að bæta úr þessu,“ sagði Ari Edwald, forstjóri 365 miðla, í fréttatilkynningu.- óój
Mest lesið „Ég átta mig á því að smekkleysið hefur sigrað“ Innlent Kenndi arabískum sveppasölumönnum um að hleypa af Innlent Möguleiki á að úrslit ráðist ekki fyrr en í næstu viku Erlent Þungt högg fyrir ferðaþjónustu á Austurlandi Innlent Bókun 35 útskýrð á mannamáli Innlent Þriðjungur borgarbúa vill skipta um ferðamáta Innlent „Hverjir tala við mömmu mína?“ Innlent Nýjar reglur í lauginni og Björn rekinn á dyr Innlent Lofar bót eftir að varað var við honum: „Rangt af mér og á því biðst ég afsökunar“ Innlent Munurinn minnkar í nýrri spá Erlent Fleiri fréttir Útkall vegna hópslagsmála í bílakjallara „Ég átta mig á því að smekkleysið hefur sigrað“ Þungt högg fyrir ferðaþjónustu á Austurlandi Kenndi arabískum sveppasölumönnum um að hleypa af Þriðjungur borgarbúa vill skipta um ferðamáta „Hverjir tala við mömmu mína?“ Bókun 35 útskýrð á mannamáli Brotist inn í fyrirtæki í miðborginni Slökkvilið í Hafnarfjörð „Síðan er ég bara með hreindýrskálf að lykta af rassinum á mér“ Tvær þyrlur út á ystu nöf lögsögunnar Sökk í þriðja sinn í höfninni „Nú er þessi sleggja að koma fram“ Nýjar reglur í lauginni og Björn rekinn á dyr Forsætisráðherra um gjaldskrárhækkanir og ESB-umsókn „Ætlunin er ekki að aðlaga þá aftur að samfélaginu“ Kristrún ræðir málin á Sprengisandi Samkvæminu slúttað vegna brots á lögum Fundu blóðuga exi og kaðal eftir að kærastinn var handtekinn Óttast að fjármagn til námsgagna rati ekki rétta leið Lofar bót eftir að varað var við honum: „Rangt af mér og á því biðst ég afsökunar“ Óttast að umræðan muni dragast fram á sumar Fékk nóg og er hættur á Facebook Guðmundur Ari í varaformanninn Flugvirkjar hafi þegar fengið hækkanir „Þetta er fullkomið áfall“ Trúir á lausn þrátt fyrir vantrauststillögu Formaður SÁÁ bjartsýnn og Icelandair svarar fyrir sig Þrír kærðir fyrir líkamsárásir „Ég hef nú ekkert verið að gráta yfir þessu“ Sjá meira