Gefa öllum sjö ára börnum reiðhjólahjálma 2. júní 2010 10:46 Nemendur af höfuðborgarsvæðinu fengu afhenta reiðhjólahjálma í dag. Þeim var auk þess boðin hressing yfir tónlistarflutningi Polla Pönks. Þá litu nokkrir velbúnir lögreglumenn við á vélfákum sínum sem ræddu við börnin og sýndu þeim hjólin sín og hjálma.
Á næstu vikum mun Kiwanishreyfingin og Eimskipafélag Íslands gefa öllum börnum sem eru að ljúka 1. bekk í grunnskólum landsins reiðhjólahjálma. Um er að ræða árlegt átak Kiwanishreyfingarinnar og Eimskips en að auki nýtur verkefnið aðstoðar Forvarnahússins. Nemendur víðsvegar af höfuðborgarsvæðinu var boðið í heimsókn í höfuðstöðvar Eimskipafélagsins í Reykjavík í dag þar sem þau fengu afhenta reiðhjólahjálmana sína. Alls verða 4200 reiðhjólahjálmar gefnir í ár og munu Kiwanisklúbbar og Eimskipafélagið vítt og breitt um landið sjá um dreifinguna, að því er fram kemur í tilkynningu. Þar segir að fyrir sjö árum hafi Kiwanishreyfingin og Eimskipafélag Íslands tekið höndum saman að fyrirmynd Kiwanisklúbbsins Kaldbaks á Akureyri og gefið reiðhjólahjálma á landsvísu. Frá upphafi verkefnisins hafa hátt í 30 þúsund hjálmar verið gefnir 7 ára börnum sem nú er um 10% þjóðarinnar. „Markaðsverð verkefnisins hefur kostað um 100 milljónir frá upphafi og er þeim peningum vel varið. Ljóst er samkvæmt upplýsingum frá lögreglunni víðsvegar um land að þessir hjálmar hafa bjargað mannslífum og mörgum ungmennum frá alvarlegum meiðslum," segir Ólafur Hand hjá Eimskipafélagi Íslands. Verkefnið nýtur einnig ráðgjafar og stuðnings Herdísar Storgaard, forstöðumanns Forvarnahússins. „Þetta er frábært tækifæri til að vekja athygli á mikilvægi þess að börn noti reiðhjólahjálma rétt, en foreldrar verða að taka þátt í þessu með okkur og fylgja því eftir" segir Herdís. Kiwanisfélagar fara í alla grunnskóla á landinu og afhenda börnunum hjálma og ræða við þau um umferðaröryggi og notkun hjálmanna. Að auki fá börnin fræðsluefni um rétta stillingu og notkun hjálma til að taka með sér heim. Hjálmur sem farið er vel með á að endast í 5 ár.
Mest lesið Íslendingar í meistaradeild þrátt fyrir herleysið Innlent Vaktin: Vopnið fundið og FBI dreifir myndum Erlent Alríkislögreglan birtir myndskeið af morðingjanum Erlent Alvarlegt atvik kom upp í Heiðarskóla Innlent Helgarlokanir leiði fólk til þess að nota efnin í bílakjöllurum Innlent Segir Íslendinga eiga eftir að uppgötva Grænland Innlent Dæmdur í tuttugu og sjö ára fangelsi fyrir valdaránstilraun Erlent Vinirnir vestanhafs hafi áhyggjur af stigmögnun Innlent Morðið á Kirk vekur upp umræðu um málfrelsi Innlent Rándýrar herþotur og flugskeyti gegn ódýrum drónum Erlent Fleiri fréttir Tveir handteknir fyrir húsbrot og einn fyrir að vera ólöglega á landinu Íslendingar í meistaradeild þrátt fyrir herleysið Helgarlokanir leiði fólk til þess að nota efnin í bílakjöllurum Vinirnir vestanhafs hafi áhyggjur af stigmögnun Segir Íslendinga eiga eftir að uppgötva Grænland Samfélagslegur sparnaður vegna herferðar rúmlega 700 milljónir Morðið á Kirk vekur upp umræðu um málfrelsi Kaldavatnslaust í hluta Laugardalsins Stefán Einar og Sigmar ræða skautun í kjölfar voðaverks Fjórtán geta búist við sekt Alvarlegt atvik kom upp í Heiðarskóla „Þetta eru ekki góðar móttökur“ E.Coli staðfest í neysluvatninu á Stöðvarfirði „Froðuhagnaður“ Félagsbústaða haldi borginni á floti Launahækkanir þungur baggi á borginni Trump nýti sér morðið til frekari valdtöku Fjörugar umræður um fjárlög: Hóflegur útgjaldavöxtur, vonbrigði eða della? Fjárlögin litlaus líkt og hann sjálfur Tekist á um fjárlagafrumvarpið og morðið á Charlie Kirk Tilkynningum um „spoofing“ fjölgað verulega síðustu ár „Súrrealísk og skelfileg upplifun“ Bein útsending: Daði Már mælir fyrir fjárlögum næsta árs Ofbeldi foreldra gegn börnum jókst um nær helming 3,7 stiga skjálfti í Árnesi Ákall um íslenskukennslu: „Oft var þörf en nú er nauðsyn“ Vilja styttu af Gunnari í Gunnarsbrekku Líkamsárás og skartgripaþjófnaður Sakborningur í 28 málum sendur úr landi Kosti þrjár milljónir fyrir alþjóðlega nemendur að læra á Íslandi Quang Le stefnir Landsbankanum Sjá meira