Innlent

Aldrei jafn margir kennarar með kennsluréttindi

Framhaldsskólanemendur.
Framhaldsskólanemendur.

Aldrei hafa fleiri kennarar verið með kennsluréttindi samkvæmt upplýsingum sem finna má á heimasíðu Hagstofunnar. Þar kemur fram að alls höfðu 82,2% starfsmanna við kennslu í nóvember 2009 kennsluréttindi og hefur fjölgað úr 78,0% árið áður.

Með réttindakennara er átt við þann starfsmann við kennslu sem hefur leyfisbréf frá menntamálaráðuneytinu til að kalla sig framhaldsskólakennara. Hlutfall réttindakennara hefur ekki verið svona hátt frá því að gagnasöfnun Hagstofunnar hófst fyrir áratug. Hæst var hlutfallið skólaárið 2005-2006 eða 78,7%.

Haustið 2009 voru 2.582 starfsmenn í framhaldsskólum landsins í 2.564 stöðugildum. Þar af voru 1.911 starfsmenn við kennslu í 1.980 stöðugildum. Breytingar á fjölda starfsmanna í framhaldsskólum milli ára eru óverulegar.

Starfsmönnum hefur fjölgað um einn frá fyrra ári en starfsmenn sem sinna kennslu eru jafn margir og fyrir ári síðan. Stöðugildum í framhaldskólum landsins hefur fjölgað um eitt á milli ára sé miðað við alla starfsmenn en fækkað um sjö þegar einungis er miðað við þá starfsmenn sem koma að kennslu.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×