Innlent

Slóðaskapur kostaði útkall

Óttast var um afdrif dragnótabáts með sjö manna áhöfn um miðnætti í gærkvöldi og var björgunarskip frá Vestmananeyjum kallað út.

Þyrla Landhelgisgæslunnar var um það bil að leggja af stað, þegar samband náðist loks við bátinn og í ljós kom að engin hætta var á ferð.

Sjálfvirkur fjareftirlitsbúnaður hafði bilað í bátnum en skipverjar ætluðu að láta vita af sér á tilteknum tíma. Það fórst fyrir og því hófst undirbúningur að leit með tilheyrandi fyrirhöfn og kostnaði, sem komist hefði verið hjá, ef skipstjóri heðfi sinnt skyldum sínum.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×