Nýjar upplýsingar komu fram í mansalsmálinu í dag 26. janúar 2010 19:33
Réttarhöldin í mansalsmálinu svokallaða tóku óvænta stefnu þegar fórnarlambið í málinu sagði frá því að hún hafi þurft að hafa samfarir við ákærðu eftir að hún kom til Íslands. Fórnarlambið hafði ekki sagt frá þessu við rannsókn málsins. Um leið og þessi 19 ára litháíska stúlka kom til íslands í október vaknaði grunur um að ekki væri allt með felldu og að hún hefði verið send hingað nauðug til þess að stunda vændi. Hún sagðist ekki eiga í nein hús að venda og engan þekkja hér á landi. Hún gat litlar skýringar gefið á ferð sinni hingað til lands en lögreglan varð vör við þrjá menn sem biðu eftir konunni á Leifsstöð og reyndu að ná sambandi við hana. Eftir að hafa verið í umsjá lögreglu í tvo daga hvarf stúlkan. Lýst var eftir henni í fréttum og hún fannst ekki fyrr en fáeinum dögum síðar og í kjölfarið var gefin út ákæra gegn sex litháum og einum Íslendingi. Réttarhöldin eru lokuð almenningi og fjölmiðlum en samkvæmt heimildum fréttastofu kom framburður fórnarlambsins bæði verjendum og saksóknara í opna skjöldu. Áður en hún bar vitni þurftu hinir ákærðu, sex Litháar og einn Íslendingur að yfirgefa réttarsalinn. Að því loknu sagði stúlkan frá því að hún hefði haft samræði við tvo af sakborningum á sama tíma og lögregluyfirvöld gerðu að henni dauðleit en hún hafði skömmu áður horfið úr umsjá félagsmálayfirvalda. Stúlkan hefur ekki áður sagt frá þessu og til marks um það fór Kolbrún Sævarsdóttir saksóknari fram á það í kjölfarið að Litháarnir yrðu aftur kallaðir til skýrslutöku svo hægt væri að spyrja þá nánar út þessar nýju upplýsingar.
Mest lesið Óttast um framtíð dóttur sinnar þegar þau geta ekki lengur hjálpað Innlent Icelandair aflýsir fimm brottförum í dag Innlent Sprengdu fljúgandi furðuhlut í loft upp Erlent Almennur borgari veitti bílnum eftirför Innlent Hildur vilji Einar í meirihluta hvernig sem fer Innlent Spjallað í Reykjavík á meðan drónarnir dynja á Kænugarði Erlent Nýtt húsnæði ráðuneytis Ingu kostar níu milljónir á mánuði Innlent Stígur fram sem „alræmdur faðir“ í Vesturbænum Innlent Níutíu látnir eftir sprengingu í kolanámu Erlent Flúðu eftir að hafa ekið á gangandi vegfaranda Innlent Fleiri fréttir „Einhvers konar toppur á ísjakanum“ Tvö mál ráði úrslitum Icelandair aflýsir fimm brottförum í dag Almennur borgari veitti bílnum eftirför Óttast um framtíð dóttur sinnar þegar þau geta ekki lengur hjálpað Flúðu eftir að hafa ekið á gangandi vegfaranda Tulsi Gabbard lætur af embætti Allt veltur á því hvort handaband teljist handsal Námsbækur barnanna búnar til „löngu áður en mamma og pabbi fæddust“ „Þetta hjól er næstum alltaf tómt“ Íslendingur vann 336 milljónir króna Sektaður fyrir að vera á nagladekkjum Hildur vilji Einar í meirihluta hvernig sem fer Var í geðrofi þegar Vinafélag Íslands-Norður-Kóreu var stofnað Bæjarstjóri Hafnarfjarðar fer yfir dramatíkina Undrandi á að Tómas fengi ekki að verja sig Verðlaunuð fyrir að bjóða unglingum upp á Sveitasælu Nýtt húsnæði ráðuneytis Ingu kostar níu milljónir á mánuði Margrét Helga til Ríkisútvarpsins Nýr meirihluti í Hörgársveit Frumvarp um brottfararstöð úr nefnd í næstu viku Kjaftfullt í golfinu í Grindavík Vildi að betur hefði verið staðið að uppsögnum hótelstarfsfólks Bein útsending: Fjallað um mælanlegan árangur á ársfundi Landspítala Sjálfstæðisflokkur býður Gylfa Þór upp í dans í Mosó Funduðu án Valdimars og ætla að hittast aftur Meirihlutaviðræður tilkynntar í Mosfellsbæ í dag og Hildur hittir oddvita Nýr meirihluti í sameinuðu sveitarfélagi Fær engin símtöl: „Ekkert spenntur fyrir því að vera kostur, hvað, númer fimm?“ Guðjón skipaður í embætti forstjóra Sjúkrahússins á Akureyri Sjá meira