Innlent

Orkuskipti í umferðinni

Óli Kristján Ármannsson skrifar
Veifað úr vetnisrafbíl Katrín Júlíusdóttir iðnaðarráðherra fékk að prufukeyra Ford Focus vetnisrafbíl sem Skeljungur tekur í notkun eftir að hafa afhent átta fyrirtækjum slíka bíla hjá Brimborg í gær.
Veifað úr vetnisrafbíl Katrín Júlíusdóttir iðnaðarráðherra fékk að prufukeyra Ford Focus vetnisrafbíl sem Skeljungur tekur í notkun eftir að hafa afhent átta fyrirtækjum slíka bíla hjá Brimborg í gær. Fréttablaðið/GVA
Nýjum Ford Focus FCV vetnisrafbílum Brimborgar og Íslenskrar Nýorku var í gær útdeilt til fyrirtækja sem taka þátt í að safna upplýsingum um eiginleika slíkra bíla í daglegri notkun við krefjandi aðstæður.

Við afhendingu bílanna benti Egill Jóhannsson, forstjóri Brimborgar, á að hér á landi væri nú stærsti floti vetnisrafbíla í Evrópu, eða 22 bílar.

„Næsta skref krefst þess að byggt verði upp dreifingarkerfi fyrir vetni,“ sagði hann og kvaðst gera ráð fyrir að hafin verði fjöldaframleiðsla bíla, á borð við þá sem nú eru hér í prófun, innan fimm ára.

Jón Björn Skúlason, framkvæmdastjóri Íslenskrar Nýorku, kvaðst jafnframt sannfærður um ágæti vetnisrafbíla, sér í lagi við íslenskar aðstæður, í samanburði við aðra rafbíla. Þar skipti máli að ekki taki nema þrjár til fjórar mínútur að fylla á bílinn, meðan rafbílar þurfi jafnvel að vera í hleðslu í átta klukkustundir. Þá sé drægi nýjustu vetnisrafbíla mun meira en rafbíla.

Jón Björn segir áfram unnið að vetnistilraunum og rannsóknum hér og vísaði meðal annars til þess að félagið hafi nýverið fengið 46 milljónir króna í styrk frá Evrópusambandinu í tengslum við nýtt rannsóknarverkefni.

Katrín Júlíusdóttir iðnaðarráðherra segir áfram unnið að orkuskiptaáætlun hér á landi.

„Við eigum bara eftir að gera byltingu á sviði samgangna og verðum þá 100 prósent endurnýtanleg,“ sagði hún. Um leið áréttaði hún að það væri ekki hlutverk hins opinbera að velja tæknina, heldur ráði markaðurinn og tækninýjungar för.

Þá þurfi að verða til þekkingarklasi þar sem einkafyrirtæki starfi með hinu opinbera við að búa í haginn fyrir það sem koma skal.

„Hér verður vonandi orkuskiptabylting á næstu örfáu árum. Við höfum gert þetta áður,“ sagði hún og vísaði til þess þegar olíukyndingu hér á landi var nær alveg skipt út fyrir hitaveitu.

Katrín afhenti bílana, en fyrirtækin sem taka þátt í verkefninu eru Brimborg, Íslensk Nýorka, Ísafold Travel, Keilir, Orkuveita Reykjavíkur, Landsvirkjun, Icelandic Hydrogen, Elding hvalaskoðun, Nýsköpunarmiðstöð og Skeljungur.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×