Ríkið hugsanlega skaðabótaskylt vegna vörslusviptinga 24. júní 2010 16:05 Einar Hugi Bjarnason, lögræðingur.
Lögmaðurinn Einar Hugi Bjarnason segir vel mögulegt að þeir aðilar sem urðu fyrir vörslusviptingu eftir að dómur Héraðsdóms Reykjavíkur féll í febrúar geti átt rétt á skaðabótum af hálfu ríkisins. Hann segir að þetta gildi eingöngu um þá aðila sem misstu bílana sína að undangengnum úrskurði héraðsdóms sem sýslumaður fylgdi svo á eftir. Til þess að svo verði þarf að sýna fram á gáleysi þessara aðila. Einar Hugi áréttar að það hafi viðgengist tvær tegundir af vörslusviptingu. Annarsvegar þeir sem voru sviptir bílunum eftir aðfaragerð. Hinir misstu bílana eftir að ákvæði í samningi var nýtt þar sem einstaklingar fyrirgerðu réttinum til þess að leita réttar síns fyrir dómstólum. Einar Hugi segist þó efast um það að einstaklingar geti samið frá sér réttindi með þessum hætti. „Í fyrrnefnda flokknum þá skiptir dómurinn í febrúar miklu máli," segir Einar Hugi en hann segir að það hafi blasað við öllum að réttaróvissa vegna gengistryggðra lána var mikil eftir að sá dómur féll. Þar með hafi það verið mögulegt að gengislánin yrðu dæmd ólögleg eins og raunin varð. Hugsanlega sýndi dómur og sýslumaður gáleysi með því að staðfesta vörslusviptingu í slíku ástandi að mati Einars. „Lántakendur stóðu í raun ekki í vanskilum þegar þeir voru sviptir bílunum," segir Einar Hugi í ljósi dómsins sem síðan féll í Hæstarétti. Einar, sem er lögmaður hjá Ergó, segir nokkrar stefnur í farvatninu þar sem reynt verður á það fyrir dómstólum hvort ríkið sé skaðabótaskylt og svo hvort hægt sé að semja frá sér réttindi eins og fólk gerði. Það varð til þess að einkaaðilar sviptu fólki bílum, stundum í skjóli nætur, að sögn Einars. „Maður hefur heyrt af dæmum þar sem bílar voru teknir í lok maí og jafnvel í byrjun júní," segir Einar Hugi. Hann hvetur ennfremur fólk til þess að huga að réttarstöðu sinni vegna vörslusviptinganna í ljósi gengisdómsins.
Mest lesið „Ég átta mig á því að smekkleysið hefur sigrað“ Innlent Kenndi arabískum sveppasölumönnum um að hleypa af Innlent Möguleiki á að úrslit ráðist ekki fyrr en í næstu viku Erlent Þungt högg fyrir ferðaþjónustu á Austurlandi Innlent Bókun 35 útskýrð á mannamáli Innlent Þriðjungur borgarbúa vill skipta um ferðamáta Innlent Nýjar reglur í lauginni og Björn rekinn á dyr Innlent Lofar bót eftir að varað var við honum: „Rangt af mér og á því biðst ég afsökunar“ Innlent „Hverjir tala við mömmu mína?“ Innlent Munurinn minnkar í nýrri spá Erlent Fleiri fréttir „Ég átta mig á því að smekkleysið hefur sigrað“ Þungt högg fyrir ferðaþjónustu á Austurlandi Kenndi arabískum sveppasölumönnum um að hleypa af Þriðjungur borgarbúa vill skipta um ferðamáta „Hverjir tala við mömmu mína?“ Bókun 35 útskýrð á mannamáli Brotist inn í fyrirtæki í miðborginni Slökkvilið í Hafnarfjörð „Síðan er ég bara með hreindýrskálf að lykta af rassinum á mér“ Tvær þyrlur út á ystu nöf lögsögunnar Sökk í þriðja sinn í höfninni „Nú er þessi sleggja að koma fram“ Nýjar reglur í lauginni og Björn rekinn á dyr Forsætisráðherra um gjaldskrárhækkanir og ESB-umsókn „Ætlunin er ekki að aðlaga þá aftur að samfélaginu“ Kristrún ræðir málin á Sprengisandi Samkvæminu slúttað vegna brots á lögum Fundu blóðuga exi og kaðal eftir að kærastinn var handtekinn Óttast að fjármagn til námsgagna rati ekki rétta leið Lofar bót eftir að varað var við honum: „Rangt af mér og á því biðst ég afsökunar“ Óttast að umræðan muni dragast fram á sumar Fékk nóg og er hættur á Facebook Guðmundur Ari í varaformanninn Flugvirkjar hafi þegar fengið hækkanir „Þetta er fullkomið áfall“ Trúir á lausn þrátt fyrir vantrauststillögu Formaður SÁÁ bjartsýnn og Icelandair svarar fyrir sig Þrír kærðir fyrir líkamsárásir „Ég hef nú ekkert verið að gráta yfir þessu“ Lét lífið á Keflavíkurflugvelli Sjá meira