Innlent

Sóley Tómasdóttir: Jón hefði getað sett fátæktarumræðuna á dagskrá

Valur Grettisson skrifar
Sóley Tómasdóttir.
Sóley Tómasdóttir.

„Ef Jón Gnarr hefði viljað ræða fátækt á þessum fundi þá hefði hann getað sett það á dagskrá," segir Sóley Tómasdóttir, borgarfulltrúi VG en hún gagnrýnir ummæli Jóns í viðtali við Vísi í gær.

Þar sagði Jón að honum fyndist sorglegt að tíma borgarráðs hafi verið eytt í ummæli hans um klám þegar staða heimilanna í borginni væri jafn alvarleg og raun ber vitni.

Sóley bendir á að ef borgastjóranum hefði verið umhugað að ræða fátækt þá hefði hann betur geta sett málið á dagskrá fundarins sem hann gerði ekki.

„En auðvitað er rætt um fátækt á borgarráðsfundum, og auðvitað varða mörg mál borgarráðs fátækt beint eða óbeint," segir Sóley og áréttar að lítill hluti fundarins í gær hafi farið í klámummælin ólíkt því sem skilja mátti af orðum Jóns.

Sóley segir að borgarráð hafi farið yfir um 20 liði á fundinum og því nóg annað að gera en að ræða gjörðir borgarstjórans.




Tengdar fréttir

Klámnotkun Jóns Gnarr rædd í borgarráði

Sóley Tómasdóttir, oddviti vinstri grænna í Reykjavík, hefur óskað eftir því að ummæli Jóns Gnarr borgarstjóra um klámnotkun hans verði tekin til umræðu í borgarráði í fyrramálið. Jón Gnarr var spurður að því í viðtali við frönsku fréttastofuna AFP hvað hann skoðaði helst á netinu og svaraði Jón hlæjandi: „Aðallega klám.“

Jón Gnarr: Klám er dýrslegt og ógeðfellt

Jón Gnarr borgarstjóri harmar mjög umræðuna sem hefur skapast um orð hans um klámnotkun sem hann lét falla í viðtali við frönsku fréttastofuna AFP. „Ég var að grínast," segir Jón og bendir á að um leið og hann hafði sleppt orðinu hafi hann sérstaklega tekið fram að þetta hefði verið grín. Því næst sagðist hann aðallega nota netið til að fara á Facebook og „gúggla."

Feministar fagna afstöðu Jóns gegn klámi

Femínistafélag Íslands fagnar því að Jón Gnarr borgarstjóri skuli taka skýra afstöðu gegn klámi og skilji skaðsemi þess samkvæmt tilkynningu sem félagið sendi frá sér.

Formaður velferðarráðs: Klám er gróft ofbeldi

Hrannar Björn Arnarsson, aðstoðarmaður forsætisráðherra, er einn þeirra fjölmörgu sem finnst ekki við hæfi að Jón Gnarr borgarstjóri hafi haft klámnotkun sína í flimtingum í viðtali við franskan fréttamann. „Það er ekki á hverjum degi sem maður getur sagst vera sammála Sóley Tómasdóttur og Hönnu Birnu í sama málinu - sú stund er runnin upp !," segir Hrannar Björn á Facebook-síðu sinni.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×