Búið að endurreikna samninga 25 - 30 þúsund einstaklinga Jón Hákon Halldórsson skrifar 20. október 2010 16:36 Árni Páll Árnason hefur boðað frumvarp í samræmi við gengisdóminn. Mynd/ Anton.
Efnahags- og viðskiptaráðuneytið áætlar að fjármálafyrirtæki hafi nú þegar endurreiknað gengisbundna lánasamninga 25 til 30 þúsund einstaklinga. Þeir lántakendur sem um ræðir hafa fengið tilkynningu um lækkun eftirstöðva lánsins í heimabanka nú þegar eða munu fá tilkynningu á næstu dögum og vikum, samkvæmt tilkynningu frá ráðuneytinu. Endurútreikningar lána eru liður í viðbrögðum fjármálafyrirtækja vegna dóms Hæstaréttar frá 16. september sl. og fyrirhugaðrar löggjafar stjórnvalda þess efnis að gengisbundin lán til húsnæðis- og bílakaupa séu ólögleg. Árni Páll Árnason, efnahags- og viðskiptaráðherra, hefur þegar boðað frumvarp sem tryggir að dómur Hæstaréttar nái til allra gengisbundinna lána til húsnæðis- og bílakaupa. Í fréttatilkynningu frá ráðuneytinu segir að reglur um uppgjör tryggi þeim sem hafa selt frá sér bíl eða íbúðarhúsnæði sanngjarna endurgreiðslu og miði stór hluti vinnunnar að því að greiða úr slíkum málum. Sum fjármálafyrirtæki bjóði endurgreiðslu eða skuldajöfnun við höfuðstól. Nokkur fyrirtæki hafi ekki lausafé til að endurgreiða öllum lántakendum. Því sé í frumvarpinu heimild til skuldajöfnunar, sem tryggi að ekki komi til þrots lánastofnana og þar með að viðskiptavinir viðkomandi fyrirtækja tapi öllum kröfum sínum á hendur þeim. „Frumvarpið miðar að því að skila öllum lántakendum gengisbundinna lána lækkun eftirstöðva, óháð samningsgerð. Samkvæmt frumvarpinu munu eftirstöðvar lánanna lækka verulega við breytinguna, t.d. um 25-47% fyrir 25 ára lán. Frumvarpið er í vinnslu í ráðuneytinu og verður að óbreyttu lagt fram í ríkisstjórn á föstudag," segir í tilkynningu frá ráðuneytinu.
Tengdar fréttir Viðskiptavinir bíða óþreyjufullir eftir endurreikningi lána Reiknað er með að efnahags- og viðskiptaráðherra leggi fram frumvarp í tengslum við gengisdóm Hæstaréttar á Alþingi á föstudag, samkvæmt upplýsingum úr ráðuneytinu. 20. október 2010 11:35 Mest lesið „Farðu nú að hætta þessu þvaðri viðrinið þitt“ Innlent Bað um íslensku á Hard Rock en kvöldið endaði hjá lögreglu Innlent Hafi komið líki stúlkunnar fyrir í ferðatösku Erlent Þorgerður varar ESB við nýjum aðildarskilmálum Innlent „Ef þessum skipum verður ógnað þá verður brugðist við því“ Innlent „Allir eru reiðubúnir að hætta á handtöku“ Innlent Segir ríkisvaldið hafa fallið á lyfjaprófi Innlent Úlfar vill verða lögreglustjóri á ný Innlent „Hlægilegt þvaður gegn lýðræði!“ Innlent Bræður hvor sínum megin við hagræðinguna í borginni Innlent Fleiri fréttir Varamaður á Ísafirði verður sveitarstjóri Súðavíkur Orðinn Háskóli Íslands á Hólum Gagnrýnir að skipinu hafi ekki verið vísað frá Svavar Pálsson ráðinn sveitarstjóri Húnabyggðar „Ekkert sérstaklega ánægð“ þegar hún sá hnífinn Margrét Kristín skipuð lögreglustjóri á Suðurnesjum „Við verðum bara að horfast í augu við smæð okkar“ Lokar fyrir aðgengi að Reykjafossi og Fossalaug Gagnrýnir Landhelgisgæsluna vegna Bandero og ýtukarl á áttræðisaldri „Allir eru reiðubúnir að hætta á handtöku“ Fósturfaðirinn áfram í gæslu Leiðrétta rangar kröfur um kílómetragjald af seldum bílum „Hlægilegt þvaður gegn lýðræði!“ Handtekinn í Reykholti vegna kannabisræktunar Bað um íslensku á Hard Rock en kvöldið endaði hjá lögreglu Fær ekki áheyrn í Hæstarétti eftir að hann kallaði konu „svertingjatussu“ Þorgerður varar ESB við nýjum aðildarskilmálum Rigningu spáð í Reykjavík alla vikuna og fólk á leið austur „Ræddum að þetta gæti verið kveðjugjöf“ Erfiðar aðstæður þegar göngumaður slasaðist á leið í Hrafntinnusker Reglugerðin rétt ókomin: „Auðvitað er þetta áfellisdómur yfir réttarframkvæmd á Íslandi“ Þór með Bandero í gæslu á hvalamiðum „Held að foreldrar hafi bara tekið þetta til sín“ „Farðu nú að hætta þessu þvaðri viðrinið þitt“ Fresta framkvæmdum á brúnni vegna vætutíðar Úlfar vill verða lögreglustjóri á ný „Ef þessum skipum verður ógnað þá verður brugðist við því“ Þór kominn að Bandero og fylgir honum eftir Segir ríkisvaldið hafa fallið á lyfjaprófi Væta með köflum í flestum landshlutum Sjá meira
Viðskiptavinir bíða óþreyjufullir eftir endurreikningi lána Reiknað er með að efnahags- og viðskiptaráðherra leggi fram frumvarp í tengslum við gengisdóm Hæstaréttar á Alþingi á föstudag, samkvæmt upplýsingum úr ráðuneytinu. 20. október 2010 11:35