Innlent

Tvö þúsund blöðrur í loftið

Mikil blöðruveisla verður við setningu Ljósanætur.
Mikil blöðruveisla verður við setningu Ljósanætur.

Nemendur í leik- og grunnskólum munu sleppa 2.000 blöðrum til himins þegar ljósanótt í Reykjanesbæ verður sett í 11. sinn við Myllubakkaskóla í dag. Nemendur koma til athafnarinnar í skrúðgöngu með trommuslætti þar sem þeir flagga litum skólanna. Gítarsveit nemenda Gítar Myllos stjórnar fjöldasöng sem endar á fyrsta ljósalaginu, Velkomin á Ljósanótt, og Árni Sigfússon bæjarstjóri setur hátíðina.

Fram undan er fjölbreytt dagskrá sem stendur yfir í fjóra daga, eða til sunnudagsins 5. september. - jss




Fleiri fréttir

Sjá meira


×