Notendum dv.is bent á að skanna tölvur sínar vegna vírusa 2. september 2010 15:09 Þetta kemur upp reyni maður að fara inn á heimasíðuna.
Heimasíða DV varð fyrir fólskulegri árás síðdegis í gær þegar tölvuþrjótar réðust á vefinn. Þeir virðast hafa nýtt sér veikleika í hugbúnaði á vefþjóni sem notaður var til að birta auglýsingar á vefnum. Í tilkynningu frá DV er þeim, sem fóru inn á vefinn dv.is á milli kl.17:40 í gær og 11:50 í morgun og vilja gæta fyllstu varúðar vegna vírussmits, bent á að skanna tölvur sínar með aðstoð vírusvarna. Hugsanlegt er að tölvuþrjótarnir hafi reynt að koma eins konar niðurhalsveiru fyrir á vefþjóni DV. Þeim notendum, sem eru með Windows XP, Windows Vista eða Mac OS og hafa ekki sett inn nýjustu öryggisuppfærslur, er ráðlagt að keyra veiruskanna til öryggis. Veiran hefur ekki áhrif á Windows 7. DV vill benda á eftirtalda veiruskanna sem hægt er að sækja á vefinn án endurgjalds: Windows Live OneCare safety scanner http://onecare.live.com/site/en-US/default.htm Fjölmargir notendur hafa í dag orðið varir við viðvaranir frá vöfrum sínum þegar þeir reyndu að fara inn á vefinn DV.is og jafnvel þegar farið var inn á síður með tenglum sem vísuðu inn á vef DV.is. Þessi skilaboð berast vegna öryggisviðbragða viðkomandi vafra, sem fóru í gang eftir að veirunnar varð fyrst vart og eru ekki hættuleg í sjálfu sér. Þeirri öryggisskráningu verður breytt um leið og staðfesting berst til viðkomandi vafra um að viðgerð sé lokið og komið hafi verið í veg fyrir að þetta endurtaki sig. Staðfest hefur verið að þrjótarnir komust ekki inn í tölvur ritstjórnar DV og þær hafa ekki orðið fyrir vírussmiti.
Mest lesið Urðu vitni að því þegar maður var hálshöggvinn Innlent Kæra freyðivínsviðburð með Lilju Alfreðs Innlent Starfsfólk á flótta og traustið horfið Innlent „Seðlabankastjóri gat ekki sagt það skýrar“ Innlent Starfsfólk búið að yfirgefa barnið þegar faðir kom að sækja það á leikskólann Innlent Páll Edwald vill sæti á lista Miðflokksins Innlent Þyrla sótti skipverja sem fékk slitinn vír í bringuna Innlent „Þetta er sárara en tárum taki“ Innlent Eitt fórnarlamba Epsteins sagt búa á Íslandi Innlent Fyrrverandi eiginmaður Bidens ákærður fyrir morð Erlent Fleiri fréttir Aðeins eitt riðutilfelli allt síðasta ár Urðu vitni að því þegar maður var hálshöggvinn Páll Edwald vill sæti á lista Miðflokksins Kæra freyðivínsviðburð með Lilju Alfreðs „Seðlabankastjóri gat ekki sagt það skýrar“ Þyrla sótti skipverja sem fékk slitinn vír í bringuna Starfsfólk á flótta og traustið horfið Maður með leiðindi reyndist eftirlýstur af lögreglu Starfsfólk búið að yfirgefa barnið þegar faðir kom að sækja það á leikskólann Óheppileg tímasetning Þriggja bíla árekstur við Sprengisand „Þetta er sárara en tárum taki“ Reyndi að sækja gras en fékk gervigras Snúist ekki um að íbúar vilji ekki „fólk úr lægri stéttum“ í hverfið Yfir 60 leikskólastjórar komnir með nóg Hreindýratarfur kostar liðlega 240 þúsund krónur – svo er allt hitt Nafnlaus ábending upphaf skoðunar á starfsmönnum Bifrastar Enginn látist á þessu eða síðasta ári af völdum berkla Án rennandi vatns í á annan sólarhring Skapi óöryggi þegar lögregla sé allt í einu mætt á svæðið Fara ekki fram á gæsluvarðhald vegna slagsmála Lögregla að fá skýrari mynd af andláti konunnar Læknar kalla eftir sérstakri nefnd til að rannsaka alvarleg atvik Vara við svikasímtölum í nafni Sigríðar Bjarkar Breytingar hjá Viðreisn eftir afsögn Guðbrands Símafrí í grunnskólum Kópavogs Eins og að kasta kjarnorkusprengju inn í fjölskyldur Þjóðin klofin gagnvart ESB og fylgi við NATO á hreyfingu Breið samstaða á Alþingi og Miðflokkurinn aftur kominn um borð Berklasmitaður maður lést á Landspítalanum Sjá meira