Innlent

Gíslatökumaður skotinn til bana

MYND/AP

Lögregla í Maryland í Bandaríkjunum skaut í gær til bana mann sem hafði ráðist inn á starfsstöð Discovery sjónvarpsstöðvarinnar og tekið þrjá starfsmenn í gíslingu. Hann var vopnaður skammbyssu auk þess sem hann hafði spent á sig nokkrar áldósir sem lögregla óttaðist að væru sprengjur.

Gíslatakan stóð yfir í nokkra klukkutíma í gær en lögreglan ákvað að láta til skarar skríða og skjóta manninn til bana þar sem óttast var að hann ætlaði að sprengja sig og gíslana í loft upp. Ekki er ljóst hvað manninum gekk til.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×