Skattalagabrotum að hluta vísað frá dómi Þorbjörn Þórðarson skrifar 1. júní 2010 11:14 Héraðsdómur hefur vísað frá að hluta ákærum vegna meintra skattalagabrota þeirra Jóns Ásgeirs Jóhannessonar og Tryggva Jónssonar. Mynd/Arnþór Birkisson
Héraðsdómur Reykjavíkur hefur vísað frá að hluta ákæru á hendur Jóni Ásgeiri Jóhannessyni og Tryggvi Jónssyni vegna meintra skattalagabrota þar sem dómurinn taldi þær brjóta gegn Mannréttindasáttmála Evrópu. Frávísunin verður kærð til Hæstaréttar. Upprunaleg ákæra var gefin út á hendur Jóni Ásgeiri Jóhannessyni, Kristínu Jóhannesdóttur og Tryggva Jónssyni vegna meintra skattalagabrota í rekstri Fjárfestingarfélagsins Gaums og Baugs Group, en þeim er gefið að sökum að bera ábyrgð á því að félögin vantöldu skatta upp á um 300 milljónir króna. Héraðsdómur Reykjavíkur vísaði í dag frá þeim hluta ákærunnar er snýr að persónulegum skattskilum Jóns Ásgeirs og Tryggva. Að sögn Helga Magnúsar Gunnarssonar, saksóknara efnahagsbrota, verður þessi úrskurður kærður til Hæstaréttar. Refsiábyrgð Gaums vegna eins ákæruliðar var einnig vísað frá en ákærum er varða meinta refsiábyrgð þremenninganna vegna fyrirsvars þeirra fyrir Baug Group og Fjárfestingarfélagið Gaum, var ekki vísað frá og standa óbreyttar. Skattyfirvöld höfðu ákveðið álag á þá Tryggva og Jón Ásgeir. Mannréttindadómstóll Evrópu (MDE) fjallaði um það í nýlegum dómi hvort að beiting álags á skattstofna vegna skattalagabrota girti fyrir að gefnar væru út ákærur vegna þessara sömu brota og var það niðurstaðan að það bryti gegn Mannréttindasáttmálanum um bann við því að menn yrðu sóttar til saka oftar en einu sinni fyrir sömu brot. Frávísun Héraðsdóms Reykjavíkur var því í samræmi við dóm Mannréttindadómstóls Evrópu. Var það því niðurstaðan að vísa ákærum frá að því marki sem Jón Ásgeir og Tryggvi hefðu áður hlotið álag á skattstofna sína. Frávísun hluta ákæruliða frá því í morgun hefur ekki áhrif á önnur mál sem rekin eru gegn Jóni Ásgeiri Jóhannessyni, en nýlega kyrrsettu skattyfirvöld eignir hans vegna mála sem eru til rannsóknar hjá skattrannsóknarstjóra. Ekki náðist í Gest Jónsson, lögmann Jóns Ásgeirs í morgun.
Mest lesið „Ég átta mig á því að smekkleysið hefur sigrað“ Innlent Kenndi arabískum sveppasölumönnum um að hleypa af Innlent Möguleiki á að úrslit ráðist ekki fyrr en í næstu viku Erlent Þungt högg fyrir ferðaþjónustu á Austurlandi Innlent Bókun 35 útskýrð á mannamáli Innlent Þriðjungur borgarbúa vill skipta um ferðamáta Innlent „Hverjir tala við mömmu mína?“ Innlent Lofar bót eftir að varað var við honum: „Rangt af mér og á því biðst ég afsökunar“ Innlent Nýjar reglur í lauginni og Björn rekinn á dyr Innlent Útkall vegna hópslagsmála í bílakjallara Innlent Fleiri fréttir Tollum hótað vegna hvalveiða sem verða bannaðar Útkall vegna hópslagsmála í bílakjallara „Ég átta mig á því að smekkleysið hefur sigrað“ Þungt högg fyrir ferðaþjónustu á Austurlandi Kenndi arabískum sveppasölumönnum um að hleypa af Þriðjungur borgarbúa vill skipta um ferðamáta „Hverjir tala við mömmu mína?“ Bókun 35 útskýrð á mannamáli Brotist inn í fyrirtæki í miðborginni Slökkvilið í Hafnarfjörð „Síðan er ég bara með hreindýrskálf að lykta af rassinum á mér“ Tvær þyrlur út á ystu nöf lögsögunnar Sökk í þriðja sinn í höfninni „Nú er þessi sleggja að koma fram“ Nýjar reglur í lauginni og Björn rekinn á dyr Forsætisráðherra um gjaldskrárhækkanir og ESB-umsókn „Ætlunin er ekki að aðlaga þá aftur að samfélaginu“ Kristrún ræðir málin á Sprengisandi Samkvæminu slúttað vegna brots á lögum Fundu blóðuga exi og kaðal eftir að kærastinn var handtekinn Óttast að fjármagn til námsgagna rati ekki rétta leið Lofar bót eftir að varað var við honum: „Rangt af mér og á því biðst ég afsökunar“ Óttast að umræðan muni dragast fram á sumar Fékk nóg og er hættur á Facebook Guðmundur Ari í varaformanninn Flugvirkjar hafi þegar fengið hækkanir „Þetta er fullkomið áfall“ Trúir á lausn þrátt fyrir vantrauststillögu Formaður SÁÁ bjartsýnn og Icelandair svarar fyrir sig Þrír kærðir fyrir líkamsárásir Sjá meira