Innlent

Fjölga ferðum til Eyja

Elliði Vignisson, bæjarstjóri Vestmannaeyjar, og Guðmundur Pedersen, fulltrúi Eimskipa.
Elliði Vignisson, bæjarstjóri Vestmannaeyjar, og Guðmundur Pedersen, fulltrúi Eimskipa.
Herjólfur mun fara fjórar ferði á degi hverjum í vetur í stað þriggja eins og áður hafði verið ákveðið. Eimskip og Vestmannaeyjabær hafa gert með sér samkomulag þess efnis.

„Áður auglýst áætlun samgönguyfirvalda gerði ráð fyrir því að einungis yrðu farnar þrjár ferðir á dag flesta daga í vetraráætlun. Eins og ítrekað hefur komið fram hafa heimamenn talið að slík áætlun myndi skerða vaxtartæki og ekki vera í neinum takti við þá þörf sem til staðar er enda farþegar á fyrstu fimm vikunum orðnir rúmlega 73 þúsund," segir Elliði Vignisson, bæjarstjóri Vestmannaeyja, í tilkynningu.

Elliði segir að af þeim sökum hafi Vestmannaeyjabær leitað til Eimskipa og samgönguráðuneytisins eftir kostnaðarþátttöku við fjölgun ferða. „Eimskip samþykkti góðfúslega að greiða 33,3% en samgöngurráðuneytið vildi að frekari reynsla kæmi á siglingar áður en ferðum yrði fjölgað og hafnaði því kostnaðarlegri þátttöku. Af þeim sökum bauðst Vestmannaeyjabær til að greiða 66,% af kostnaði við fjölgun ferða á móti 33,3% Eimskipa."

Þá segir Elliði: „Með tilliti til þess að tekjur ríkisins af siglingum Herjólfs eru langt umfram það sem búist var við óskaði undirritaður eftir því að Vegagerðin nýtti hluta af þeim tekjum til að bæta við ferðum á laugardögum þannig að hægt yrði að auglýsa fjórar ferðir á dag, alla daga vikunnar í vetraráætlun. Við því hefur Vegagerðin nú oriðið í það minnsta fram að áramótum."




Fleiri fréttir

Sjá meira


×