Innlent

Hver er þessi Guðbjartur Hannesson?

Erla Hlynsdóttir skrifar
Guðbjartur Hannesson settist fyrist á þing fyrir aðeins þremur árum rúmum
Guðbjartur Hannesson settist fyrist á þing fyrir aðeins þremur árum rúmum

Guðbjartur Hannesson, nýr ráðherra velferðarmála á Íslandi, hefur skotist hratt upp á stjörnuhiminn íslenskra stjórnmála. Samfylkingarmenn hafa lengi þekkt Guðbjart sem traustan og vinnusaman baráttumann en hann vakti fyrst athygli landans þegar hann lét til sín taka í Icesave-málinu sem formaður fjárlaganefndar Alþingis. Þá var ljóst að vegsauki hans yrði mikill innan flokksins.

Guðbjartur var kjörinn þingmaður Samfylkingarinnar árið 2007 og situr sem fulltrúi Norðvesturkjördæmis. Eftir aðeins tveggja ára þingsetu var hann kjörinn forseti Alþingis og nú, þremur árum eftir að hann sest á þing, er Guðbjartur orðinn ráðherra félags- og heilbrigðismála í sameinuðu velferðarráðuneyti.

Guðbjartur var formaður félags- og tryggingamálanefndar árin 2007 til 2009, hefur setið sem formaður fjárlaganefndar frá árinu 2007 og var í menntamálanefnd Alþingis árin 2007 til 2009. Hann á einnig að baki tveggja ára setu í Íslandsdeild Vestnorræna ráðsins og situr nú annað árið sitt í Íslandsdeild Alþjóðaþingmannasambandsins.

Guðbjartur er fæddur 3. júní 1950 og er því sextugur að aldri. Hann er giftur Sigrúnu Ásmundsdóttir iðjuþjálfa og eiga þau tvær dætur.

Rétt rúmlega tvítugur fór Guðbjartur að kenna við Grunnskóla Akraness, en þar er hann fæddur og uppalinn. Hann varð síðar skólastjóri skólans. Guðbjartur sat í bæjarstjórn Akranesskaupstaðar, var formaður bæjarráðs og forseti bæjarstjórnar.

Hann tók alla tíð virkan þátt í starfi bæjarfélagsins og gaf tóninn í félagsmálastörfum sínum þegar hann var erindreki Bandalags íslenskra skáta á þrítugsaldrinum.

Fyrir rúmum áratug, árið 1998, settist Guðbjartur í bankaráð Landsbanka Íslands. Þar starfaði hann til ársins 2003. Á árunum 2002 til 2003 sat hann einnig í bankaráði Heritable-bankans í London sem þá var orðinn eign Landsbankans.

Menntun:

Kennarapróf Kennaraháskóla Íslands 1971

Tómstundakennarapróf frá Seminariet for Fritidspædagoger, Vanløse, Danmörku 1978

Framhaldsnám í skólastjórn KHÍ 1992-1995

Meistarapróf frá kennaraskóla Lundúnaháskóla 2005








Fleiri fréttir

Sjá meira


×