Innlent

Brýnt að bæta viðbragðsáætlanir vegna eldgosa

Brýn þörf er á að bæta úr viðbragðsáætlunum almannavarna vegna Kötlugosa og annarrar eldgosahættu á Suðurlandi. Þetta er niðurstaða doktorsrannsóknar á vegum Háskóla Íslands og Macquarie háskólans í Ástralíu. Doktorsverkefnið vann Deanne K. Bird en hún flytur fyrirlestur um niðurstöður sínar í Háskólanum á morgun.

Rannsakaðar voru samfélagslegar hliðar eldfjallavár og viðbragðsáætlana og var sjónum einkum beint að Kötlu, en hún er talin ein virkasta og hættulegasta eldstöð Íslands. Niðurstöður rannsóknarinnar sýna að þekking og viðhorf íbúa á náttúruvá tengdri Kötlu og hvernig þeir myndu bregðast við hættunni er breytileg eftir hópum.

Brýn þörf er sögð á úrbótum svo hægt verði að draga úr áföllum og hættu vegna Kötlugosa. Stjórnendur neyðar- og rýmingaráætlana eru sérstaklega hvattir til að leita samvinnu við bændur og taka tillit til staðbundinnar þekkingar þeirra. Ennfremur þurfi að bæta miðlun upplýsinga og fræðslu til ferðamanna og ferðaþjónustuaðila.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×