Ásmundur Einar: Ögmundur verður ekki þægur ráðherra Erla Hlynsdóttir skrifar 2. september 2010 09:33 Ásmundur Davíð er þess fullviss að Ögmundur stendur við sannfæringu sína í Icesave-málinu þegar hann verður ráðherra að nýju Mynd: Anton Brink „
Menn eru komnir í algjört öngstræti með þessa stjórnarandstöðu innanborðs. Nú á að kippa henni inn fyrir borðstokkinn," segir Pétur Blöndal, þingmaður Sjálfstæðisflokksins.„Þegar órólega deildin er tekin inn þá er það væntanlega til þess að hún verði róleg. Pétur var gestur Heimis Karlssonar og Kolbrúnar Björnsdóttur í þættinum Í bítið á Bylgjunni í morgun. Ásmundur Einar Daðason var þar einnig mættur til að ræða við þau um breytingar á ríkisstjórninni og mögulega evrópusambandsaðild. Ásmundur sagðist ekki kannast við að innan þingflokks vinstri grænna væru margar deildir og því ekki um að ræða neina órólega deild þar. Það virðist liggja fyrir að Ögmundur Jónasson sé nú á leið inn í ríkisstjórnina á ný en hann sagði af sér embætti heilbrigðisráðherra þar sem hann var á öndverðum meiði við meirihluta ríkisstjórnarinnar í Icesave-málinu. „Ögmundur Jónasson vék úr ríkisstjórn því hann var ekki tibúinn að ganga í takt við þá niðurstöðu sem síðan hefur komið í ljós að var hárrétt ákvörðun," segir Ásmundur. Pétur rifjaði þá upp: „Ef ég man rétt þá lá hótun á bak við þetta líka." Ásmundur sagði að afsögn Ögmundar hafi ekki falið í sér neina hótun, aðeins árétting á því að hann væri ekki á sömu skoðun og ríkisstjórnin. „Hann er nú að fara inn," segir Ásmundur. „Svo vel þekki ég hann að ég veit að hann hefur ekki skipt um skoðun," segir hann og er þess fullviss að ekki er verið að veita Ögmundi ráðherraembætti til að hafa hann stilltan. Viðtal Heimis og Kollu við þá Ásmund og Pétur má hlusta á hér.
Mest lesið Þrír flokkar skipa efstu sætin í nær öllum kjördæmum Innlent „Í versta falli alvarleg forréttindablinda“ Innlent Æðsti yfirmaður NASA: „Fylgjandi því að gera Plútó aftur að reikistjörnu“ Erlent Leist ekki á tillögu um opnun Hormússunds Erlent Taldi að vegabréfinu hefði verið stolið við Skógafoss Innlent Handtekinn eftir að rottueitur fannst í barnamat Erlent Töluverður viðbúnaður lögreglu í Kópavogi Innlent „Þetta á náttúrulega ekki að gerast“ Innlent Lögregla með virkt eftirlit við afmæli Hell's Angels Innlent Katla kjörin forseti Stúdentaráðs Innlent Fleiri fréttir Fjórir handteknir vegna fjögurra líkamsárása Lögregla með virkt eftirlit við afmæli Hell's Angels Þrír flokkar skipa efstu sætin í nær öllum kjördæmum „Í versta falli alvarleg forréttindablinda“ Katla kjörin forseti Stúdentaráðs Töluverður viðbúnaður lögreglu í Kópavogi Taldi að vegabréfinu hefði verið stolið við Skógafoss „Þetta á náttúrulega ekki að gerast“ „Mjög gott að við höfum náð að slíðra sverðin“ Vinna að spálíkani til að skima sjálfvirkt fyrir vannæringu Beint: Pallborð Leigjendasamtakanna um húsnæðismál Glapræði að fella niður einu ferð dagsins: „Er öllum sama þó Grímsey fari í eyði?“ Það geti ekki hvaða skip sem er dýpkað í mynni Landeyjahafnar „Flokkur fólksins tekur í rauninni út óánægju með ríkisstjórnina“ Óska þess að ákvörðun um spítalann liggi fyrir sem fyrst Meirihlutinn á þingi fallinn, gremja í Grímsey og risadagur í íþróttunum Gulu hjólunum stillt upp á slysstöðum Verkalýðsfélögin úrelt og þau hefði mátt leggja niður um aldamótin Beittir lögreglutökum eftir ógnandi tilburði í miðbæ Fjöldi viðbragðsbíla kom á vettvang falsboðs Meirihlutinn fallinn og VG á þingi Farfuglar koma marktækt fyrr til landsins en áður „Dapurlegt pólitískt útspil“ Höfðinginn átti sig ekki á lokuninni Myndaveisla: Verkalýðsdagurinn haldinn hátíðlegur Sinueldur í Grafarvogi Þetta sé bæjarstjórn Kópavogs til skammar Framboðum Miðflokksins fjölgar um átta milli kosninga Lífið umturnaðist í kjölfar slyssins Bein útsending: Verkalýðsdagurinn haldinn hátíðlegur Sjá meira