Einoka aðgang að ljósleiðara 2. september 2010 06:00 Hrannar Pétursson.
Upplýsingatækni Míla vinnur gegn markmiðum ríkisins um samkeppni á fjarskiptamarkaði með því að meina Vodafone um aðgang að ljósleiðarahringtengingu um landið. Þetta er mat Vodafone sem fengið hefur afhentan frá utanríkisráðuneytinu einn af átta ljósleiðaraþráðum í svokölluðum NATÓ-ljósleiðara sem Varnarmálastofnun hafði áður umráð yfir. Varnarmálastofnun bauð út tvo ljósþræði í kaplinum árið 2008 og var gengið til samninga við fjarskiptafélögin Fjarska og Vodafone. Í apríl á þessu ári var gengið frá samningi milli Vodafone og Varnarmálastofnunar og hefur utanríkisráðuneytið formlega afhent fyrirtækinu téðan ljósleiðaraþráð. Samkvæmt upplýsingum frá Vodafone hefur fyrirtækið lagt í tugmilljónakostnað til þess að tengjast strengnum á nærri 40 tengistöðvum víða um land, en er neitað um aðgang af hálfu Mílu. „Míla hefur engar lagalegar forsendur fyrir því að hafna okkur um aðgang að sinni aðstöðu, svo Vodafone geti komið umræddum ljósþræði í rekstur. Eina markmið Mílu er að draga málið á langinn og hamla gegn samkeppni með ólögmætum hætti," segir Hrannar Pétursson upplýsingafulltrúi Vodafone og vísar til fyrri úrskurða Póst- og fjarskiptastofnunar (PFS) sem sýni að Mílu sé skylt að veita slíkan aðgang. PFS hafnaði því 25. ágúst síðastliðinn að kveða upp bráðabirgðaúrskurð í deilumáli fyrirtækjanna. Hrafnkell V. Gíslason, forstjóri PFS, segir málið fara í hefðbundinn farveg innan stofnunarinnar þar sem leitað verði andsvara við umkvörtunum. Alla jafna ætti ekki að taka meira en þrjá mánuði að leiða svona mál til lykta, en við taki svo hefðbundnar kæruleiðir. Hrannar bendir á að einn megintilgangur PFS sé að tryggja samkeppni á fjarskiptamarkaði. „Við treystum því að stofnunin taki það hlutverk sitt alvarlega og vinni málið hratt." Ekki náðist í forsvarsmenn Mílu í gær. Míla er í eigu Skipta, sem einnig á Símann og fleiri fyrirtæki. - óká / sjá síðu 10
Mest lesið Þrír flokkar skipa efstu sætin í nær öllum kjördæmum Innlent „Í versta falli alvarleg forréttindablinda“ Innlent Æðsti yfirmaður NASA: „Fylgjandi því að gera Plútó aftur að reikistjörnu“ Erlent Leist ekki á tillögu um opnun Hormússunds Erlent Taldi að vegabréfinu hefði verið stolið við Skógafoss Innlent Handtekinn eftir að rottueitur fannst í barnamat Erlent Töluverður viðbúnaður lögreglu í Kópavogi Innlent „Þetta á náttúrulega ekki að gerast“ Innlent Lögregla með virkt eftirlit við afmæli Hell's Angels Innlent Katla kjörin forseti Stúdentaráðs Innlent Fleiri fréttir Fjórir handteknir vegna fjögurra líkamsárása Lögregla með virkt eftirlit við afmæli Hell's Angels Þrír flokkar skipa efstu sætin í nær öllum kjördæmum „Í versta falli alvarleg forréttindablinda“ Katla kjörin forseti Stúdentaráðs Töluverður viðbúnaður lögreglu í Kópavogi Taldi að vegabréfinu hefði verið stolið við Skógafoss „Þetta á náttúrulega ekki að gerast“ „Mjög gott að við höfum náð að slíðra sverðin“ Vinna að spálíkani til að skima sjálfvirkt fyrir vannæringu Beint: Pallborð Leigjendasamtakanna um húsnæðismál Glapræði að fella niður einu ferð dagsins: „Er öllum sama þó Grímsey fari í eyði?“ Það geti ekki hvaða skip sem er dýpkað í mynni Landeyjahafnar „Flokkur fólksins tekur í rauninni út óánægju með ríkisstjórnina“ Óska þess að ákvörðun um spítalann liggi fyrir sem fyrst Meirihlutinn á þingi fallinn, gremja í Grímsey og risadagur í íþróttunum Gulu hjólunum stillt upp á slysstöðum Verkalýðsfélögin úrelt og þau hefði mátt leggja niður um aldamótin Beittir lögreglutökum eftir ógnandi tilburði í miðbæ Fjöldi viðbragðsbíla kom á vettvang falsboðs Meirihlutinn fallinn og VG á þingi Farfuglar koma marktækt fyrr til landsins en áður „Dapurlegt pólitískt útspil“ Höfðinginn átti sig ekki á lokuninni Myndaveisla: Verkalýðsdagurinn haldinn hátíðlegur Sinueldur í Grafarvogi Þetta sé bæjarstjórn Kópavogs til skammar Framboðum Miðflokksins fjölgar um átta milli kosninga Lífið umturnaðist í kjölfar slyssins Bein útsending: Verkalýðsdagurinn haldinn hátíðlegur Sjá meira