Innlent

Skúrarnir við Vesturbæjarskóla fluttir

Ákveðið hefur verið að flytja tvo skúra af lóð Vesturbæjarskóla í Reykjavík og að frístundastarf yngstu bekkja fari fram inni í húsnæði skólans í vetur. Fram kemur í tilkynningu frá Reykjavíkurborg að þetta hafi verið ákveðið í samráði við foreldra, skólastjóra og stjórnendur frístundaheimilis.

Mjög var gagnrýnt að skúrarnir undir frístundastarfið væru settir á lóðina. Þeir tækju til að mynda stóran hluta af leiksvæði barnanna. Haft er eftir Jóni Gnarr að mestu máli skipti að hagsmunir barnanna séu hafðir að leiðarljósi.








Fleiri fréttir

Sjá meira


×