Öryggismálum ábótavant við Silfru SB skrifar 20. júní 2010 15:50 Jónína Ólafsdóttir landfræðingur gagnrýnir ástandið í sportköfun.
Ekkert upplýsingaskilti eða varasúrefni er við vinsælasta köfunarstað Íslands, Silfru, þar sem erlendur ferðamaður lést í gær. Eftirlit með fyrirtækjum sem bjóða upp á sportköfun er ábótavant og reglugerðir úreldar. Þetta kemur fram í lokaritgerð Jónínar Ólafsdóttur landfræðings sem segir ástandið í sportköfun hér á landi afar slæmt. "Það sem helst má gagnrýna er að það er ekki eftirlit með neinu. Atvinnuköfunarskírteini eru gefin út af Siglingastofnun og allar reglugerðir og lög eru þýdd upp úr norsku og byggja á norskum reglugerðum um atvinnukafara sem vinna aðallega á olíuborpöllum," segir Jónína. Í ritgerð sinni fjallar hún sérstaklega um Silfru sem er vinsælasti köfunarstaður Íslands. "Þarna eru tugir manns sem kafa á hverjum degi en samt er ekkert varaloft á svæðinu. Þeir sem kafa á vegum köfunarfyrirtækja þurfa að framvísa þeim skírteinum, en ekkert eftirlit er með þeim sem eru á eigin vegum," segir Jónína og bendir á að Silfra sé afar djúp gjá með miklu hellakerfi. "Ef það yrði bara sett upp upplýsingaskilti og varasúrefni við gjánna værum við strax í betri málum," segir Jónína sem tekur þó fram að nokkur ferðaþjónustufyrirtækin standi sig afar vel, þar á meðal fyrirtækið sem skipulagði ferð erlenda ferðamannsins í gær. "En það eru mörg smærri fyrirtæki sem eru í algjöru bulli, með allt of fáa leiðbeinendur og hleypa of mörgum í gjánna í einu. Punkturinn er sá að ekkert eftirlit er með fyrirtækjunum og því þarf að breyta." Ritgerð Jónínu má lesa í heild sinni hér en helstu punktar hennar eru þessir: Öryggismálin sem snúa að köfun á Íslandi eru ekki í nógu góðu standi og lítið eftirlit er með kennslu í köfun. Lög og reglugerðir um köfun á Íslandi henta illa hér á landi. Reglugerðin er þýdd upp úr norskri reglugerð sem snýst að miklu leiti um köfun við olíuborpalla. Þegar kemur að atvinnuköfun, bæði kennslu og ferðamannaköfun er lítið eftirlit og öryggisstöðlum ekki vel fylgt eftir. Siglingastofnun sér um útgáfu kafaraskírteina sem eiga sér enga hliðstæðu í heiminum og gilda hvergi annars staðar.
Mest lesið Fjölskyldur skildar eftir á Alicante um miðja nótt Innlent „Eins og einhverjir fávitar á gólfinu, korter í að grenja“ Innlent Áhrifavaldur drepin eftir hún minntist á ásakanir í garð eiginmannsins Erlent Ráðgjafar áhyggjufullir og Trump gerði hlé á árásum Erlent „Uppáhaldið“ hans Epsteins mun erfa veldið Erlent Hafi sagt að ekki mætti gefa svo mikið morfín en gerði það samt Innlent Fokin tjöld og slagsmál á Bræðslunni Innlent Stærsta rafflugvélin fær grænt ljós á fyrsta flug Innlent Lýsa eftir þekktum öfgamanni Erlent Umræða í hnút: Hann segir, hún segir, þarna stendur... hvað er rétt? Innlent Fleiri fréttir „Fólk bara fór í hina úlpuna sína og brosti“ Umræða í hnút: Hann segir, hún segir, þarna stendur... hvað er rétt? „Alltaf tortryggin gagnvart boði um gull og græna skóga“ „Eins og einhverjir fávitar á gólfinu, korter í að grenja“ Hafi sagt að ekki mætti gefa svo mikið morfín en gerði það samt Strandaglópar á Spáni og vont veður á Brennslunni Fjölskyldur skildar eftir á Alicante um miðja nótt Fokin tjöld og slagsmál á Bræðslunni Fluttur á bráðamóttökuna eftir vinnuslys í Kópavogi Evrópumálin, sala áfengis og kjarasamningar á Sprengisandi Stærsta rafflugvélin fær grænt ljós á fyrsta flug Hvassviðri hefur sett strik í reikninginn á Bræðslunni Flúðu heimili sitt vegna gróðurelda: „Þetta verður ekki fallegt, fjallið er allt brunnið“ Þúsund sjúkraflug á árinu: „Fyrsta skipti sem við brjótum þann múr“ Bráð veikindi og alelda bíll við Kambana Komst undan ásamt fjölskyldunni „Við ákváðum að snúa bara vörn í sókn“ Fæðingardeildin hafi gleymst í hita leiksins Eldur í sumarbústað við Suðurlandsveg Þúsund ára gömul mynt fannst í gamalli verbúð Íslendingur í grennd við Madríd og met í sjúkraflugferðum Fleiri en þeir sem tókust á lentu í átökum ungmenna Áttu eitthvað vantalað við manninn sem endaði fram af svölunum Ari úrskurðaður í gæsluvarðhald á Kýpur Fleygt fram af svölum á fyrstu hæð fjölbýlishúss Eigi ekki að kosta milljónir króna að klæðast landsliðsbúningnum Skynet langt undan en íslensk stjórnvöld þurfa að vera undirbúin „Klappað eins og það væri stórstjarna að koma inn“ Óttast að „bottar“ muni ýta undir ágreining í aðdraganda atkvæðagreiðslu Íslensk hjón þurft að flýja undan gróðureldum á Spáni Sjá meira