Innlent

Segja ráðherra brjóta lögin

Framkvæmdastjóri LÍÚ og hans menn funduðu með Jóni Bjarnasyni um miðjan júlí vegna rækjumálsins.fréttablaðið/anton
Framkvæmdastjóri LÍÚ og hans menn funduðu með Jóni Bjarnasyni um miðjan júlí vegna rækjumálsins.fréttablaðið/anton

 Niðurstaða lögfræðiálits sem Landssamband íslenskra útvegsmanna lét vinna er að sjávarútvegsráðherra hafi farið á svig við lög þegar hann ákvað að gefa ekki út aflamark í úthafsrækju fyrir komandi fiskveiðiár.

Í álitinu er það skýr niðurstaða að ákvörðun ráðherra standist ekki lög um stjórn fiskveiða og sé því „ólögmæt og ógildanleg.”

Í tilkynningu frá LÍÚ segir að þegar fiskveiðiárinu 2009/2010 lauk 31. ágúst hafi allur sjö þúsund tonna rækjukvótinn veiðst. Rétt sé að halda því til haga að ákvörðun ráðherra um að gefa ekki út aflamark byggðist á því að veiðar á rækju hefðu á liðnum árum verið undir leyfilegum heildarafla.

LÍÚ hefur bent á að hrun í afla á sóknareiningu og lækkun á afurðaverði samfara hækkandi olíuverði hafi orðið til þess að veiðar báru sig ekki. Í álitinu segir einnig að veigamikil og málefnaleg rök þurfi til að ráðherra sé heimilt að líta framhjá tillögum Hafrannsóknastofnunarinnar „og á það sérstaklega við þar sem tillaga stofnunarinnar var algjörlega hunsuð í því tilviki sem hér er til skoðunar.”

- shá




Fleiri fréttir

Sjá meira


×