Innlent

Telur að Ingvi Örn fylgi Árna í nýtt ráðuneyti

Sigurður Kári Kristjánsson.
Sigurður Kári Kristjánsson.
Sigurður Kári Kristjánsson, þingmaður Sjálfstæðisflokksins, telur að Ingvi Örn Kristinsson verði á næstunni skipaður ráðuneytisstjóri í efnahags- og viðskiptaráðuneytinu verði Ingvi á annað borð ekki skipaður forstjóri Íbúðalánasjóðs.

Ingvi Örn starfaði sem ráðgjafi hjá félagsmálaráðuneytinu eftir bankahrunið en þar áður var hann framkvæmdastjóri hjá Landsbankanum. Vera Ingva í ráðuneytinu var umdeild ekki síst eftir að hann gerði 230 milljóna króna kröfu í þrotabú Landsbankans. Þá sótti Ingvi Örn um stöðu forstjóra Íbúðalánasjóðs í byrjun sumars en styr hefur staðið um ráðningu nýs forstjóra í stað Guðmundar Bjarnasonar sem lét af störfum í lok júní.

Efnahags- og viðskiptaráðuneytið hefur verið án ráðuneytisstjóra eftir að Jónína S. Lárusdóttir, fyrrverandi ráðuneytisstjóri, var nýverið ráðin framkvæmdastjóri lögfræðisviðs Arion banka. Umsóknarfrestur um ráðuneytisstjórastöðuna rann út 23. ágúst.

„Því skal hér spáð að Árni Páll Árnason, nýskipaður efnahags- og viðskiptaráðherra, skipi Ingva Örn Kristinsson ráðuneytisstjóra í efnahags- og viðskiptaráðuneytinu, takist ráðherranum ekki það ætlunarverk sitt að gera Ingva Örn að forstjóra Íbúðarlánasjóðs," segir Sigurður Kári á heimasíðu sinni.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×