Eldhús OR kostar 120 milljónir á ári 2. september 2010 05:00 Glæsilegt eldhús Orkuveitu Reykjavíkur hefur vakið athygli undanfarið í kynningarmyndbandi á Netinu. Eldhúsið kostaði um 60 milljónir króna í uppsetningu árið 2003. Það var ekkert bruðlað, segir fyrrum stjórnarformaður.
Eldhús í húsnæði Orkuveitu Reykjavíkur (OR) kostaði 61 milljón í uppsetningu. Eldhúsið var sett upp árið 2003 og þremur árum síðar var bætt við innréttingum fyrir 9 milljónir til viðbótar. Rekstrarkostnaður eldhússins árið 2009 var 119,7 milljónir króna. Árið 2009 var 3.215 gestum boðið upp á veitingar í húsnæði OR og framreiddar 130 þúsund máltíðir fyrir starfsmenn. Þeir eru nú 623 talsins. Kynningarmyndband sem sýnir íburðinn í eldhúsinu hefur vakið athygli undanfarna daga og sagði Haraldur Flosi Tryggvason, núverandi stjórnarformaður OR, í samtali við Bylgjuna í gærmorgun að hann furðaði sig á því hvers vegna svona myndbönd væru yfir höfuð gerð. „Menn hafa sýnt metnað í fjárfestingum Orkuveitunnar," sagði Haraldur Flosi. „Við erum svolítið að sitja uppi með það." Alfreð Þorsteinsson, fyrrum stjórnarformaður OR, segir að húsnæðið hafi ekki verið dýrara heldur en vandað skólahúsnæði í Reykjavík og ákveðið hafi verið að vanda til hluta eins og eldhússins á sínum tíma. „Það var ekkert bruðlað sérstaklega í uppbyggingu þessa eldhúss," segir Alfreð. „Nýjustu tæki sem voru fáanleg voru sett upp vegna þess að það er heilmikið batterí að hafa mötuneyti fyrir svona mikinn fjölda. Ég held að það hefði þótt skrýtið ef keypt hefðu verið gömul tæki eða eitthvað drasl." Myndbandið, sem er tæpar tíu mínútur að lengd og kostaði 650 þúsund krónur í heild, var framleitt árið 2004. Samkvæmt upplýsingum Orkuveitunnar var vakti eldhúsið mikla athygli á sínum tíma og sóttust fagmenn og rekstraaðilar mötuneyta mjög eftir því að koma í heimsókn og skoða það. Var myndbandið gert til að svara þessum áhuga og draga úr stöðugum heimsóknum. Myndbandið var gert í samvinnu við þá birgja sem seldu innréttingarnar og tækin og kostað mestmegnis af þeim. Samkvæmt upplýsingum frá OR er að finna sambærileg eldhús í mötuneytum Alcoa - Fjarðaáls, Arion banka og Norðuráls. sunna@frettabladid.is
Mest lesið Skuldbundu sig í fjögur ár en farin eftir átján mánuði Innlent Bólga eftir bílbeltið leiddi til sýknu Innlent Vaxtaplanið sé tímaskekkja Innlent Aðalsteinn hleypur í skarðið Innlent „Það vegast þarna á mjög erfið sjónarmið“ Innlent Þurfi frekar að gera meira fyrir konurnar heldur en að skrímslavæða þær Innlent Fallið frá þróun nýrrar samevrópskrar herþotu Erlent „Börn eiga aldrei að borga fyrir gjörðir foreldra sinna“ Innlent Marius látinn laus Erlent „Það þarf nú ansi mikið að ganga upp“ Innlent Fleiri fréttir „Það vegast þarna á mjög erfið sjónarmið“ Rafvarnarvopn kom við sögu þar sem tilkynnandi um brot var handtekinn Vaxtaplanið sé tímaskekkja Bólga eftir bílbeltið leiddi til sýknu Skuldbundu sig í fjögur ár en farin eftir átján mánuði „Það þarf nú ansi mikið að ganga upp“ Þurfi frekar að gera meira fyrir konurnar heldur en að skrímslavæða þær Aðalsteinn hleypur í skarðið „Börn eiga aldrei að borga fyrir gjörðir foreldra sinna“ Vilhjálmur sagði af sér þingmennsku Andmæla fundarboði aðalfundar Sósíalista Konukot og börn í brottfararstöð í brennidepli í kvöldfréttum Séra Guðni Már kveður Ísland Magga Friðriks leitar til almennings eftir stuðningi „Svaraðu spurningunni“ Sérsveitaraðgerð á Eskifirði Tjón upp á hundrað milljónir og eldsupptök ráðgáta Nær tvöföldun umsókna um meistaranám „Beinin af Jónasi skipta andskotans engu máli“ Verðlaunuðu Evrópusinna fyrir að sporna gegn óreiðu Leit að arftaka Höllu Bergþóru hafin: „Kemur í ljós“ Eldur í vinnuvél á Álfsnesi Vildi vita hvort varnarsamningi við Bandaríkin yrði teflt í tvísýnu með ESB-viðræðum Enn í lífshættulegu ástandi Lýsingar á ófremdarástandi við Konukot komi á óvart ESB á Alþingi, Konukot og sáttur Bubbi Samkomulag um landaheitið Ísland undirritað „Grundvallaratriði í rekstri að fólk komist til og frá“ Eftirlýstur hrækti á starfsmann skemmtistaðar og lögreglu Drengurinn fannst heill á húfi Sjá meira