Innlent

Herþotur Bandaríkjahers lentu á Keflavíkurflugvelli í dag

Tíu herþotur Bandaríkjahers, sem til stendur að sinni loftrýmisgæslu hér á næstunni, lentu á Keflavíkurflugvelli í dag. Vélarnar lentu á flugvellinum uppúr hádegi. Þetta eru F-15 þotur, tíu talsins. Þeim fylgir 175 manna lið, hermenn úr Bandaríkjaher, og líka eldsneytisbirgðalið. Þá hafa herflutningavélar einnig komið hingað með búnað.

Loftsýmisgæslan á að standa til 24. þessa mánaðar. Vélarnar eiga að æfa lendingar á Keflavíkurflugvelli og aðflug að Egilsstaðaflugvelli og Akureyrarflugvelli.

Þetta eru bæði fleiri vélar og fleiri hermenn en áður hafa komið hingað vegna loftrýmisgæslunnar. En áður hafa vélarnar verið fjórar. Kostnaður stjórnvalda vegna þessa mun vera um 12 milljónir króna.

Ákvörðun bandaríska flughersins, að senda hingað á morgun mun öflugri flugsveit til loftrýmisgæslu en áður hefur tíðkast, vekur spurningar innan íslenska stjórnkerfisins hvort hún tengist áhuga hátt setts bandarísks herforingja NATO á að Íeftirlitsmiðstöð fyrir norðurslóðir verði komið á fót hérlendis.

Utanríkisráðherra hafði í fréttum Stöðvar 2 í gær ekki aðra skýringu á þessum aukna áhuga Bandaríkjamanna á íslenska loftrýminu en að þeir telji þetta gott tækifæri til að þjálfa flugsveitina.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×