Innlent

Bannar veiðar á silungi og laxi

Óheimilt er að veiða lax og silung við eða af brúnni yfir svonefnd Vöð í Önundarfirði.
Óheimilt er að veiða lax og silung við eða af brúnni yfir svonefnd Vöð í Önundarfirði.
Sýslumaðurinn á Ísafirði, í samráði við Fiskistofu, hefur bannað veiðar á silungi og laxi við, eða af brúnni yfir svonefnd Vöð í Önundarfirði. Talið er að veiðar af brúnni geti valdið tjóni á fiskrækt í Hestá og fiskgengd í Bjarnardalsá og Korpu, enda staldrar laxinn við hjá brúnni á leið sinni upp í árnar. Svipað ástand hefur skapast víðar þar sem firðir hafa verið þveraðir með uppfyllingum og brúm.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×