Innlent

Ofvirk ungmenni hætta á rítalíni vegna fordóma

Erla Hlynsdóttir skrifar
Matthías Halldórsson varar við fordómum í garð þeirra sem þurfa á rítalini að halda
Matthías Halldórsson varar við fordómum í garð þeirra sem þurfa á rítalini að halda

„Baráttuna gegn misnotkun verður að efla, en hún má ekki verða til þess að hindra aðgengi þeirra sem eru með staðfest ADHD og hafa gagn af meðhöndlun einkenna sinna. Það væri að kasta barninu út með baðvatninu," segir Matthías Halldórsson, læknir á geðsviði Landspítala.

Hann skrifar ritstjórnargrein í nýjasta hefti Læknablaðsins þar sem hann vekur athygli á því að þrátt fyrir að hægt sé að misnota rítalín séu margir sem þurfa nauðsynlega á lyfinu að halda. Umræðan um mögulega misnotkun rítalíns hefur farið hátt og ýtt undir fordóma í garð þeirra sem nota lyfið að læknisráði.

„Fæstir þeirra sem tjá sig á opinberum vettvangi virðast hafa kynnt sér þær miklu rannsóknir sem liggja að baki greiningu og meðferð við ADHD og foreldrar þurfa að sitja undir því að halda dópi að börnum. Undirritaður þekkir dæmi þess að ungmenni hafi viljað hætta á vel heppnaðri lyfjameðferð eingöngu vegna umræðunnar. Svo rammt kvað að sleggjudómum um greiningu og meðferð ADHD að árið 2002 sendu rúmlega 80 af fremstu vísindamönnum heims á þessu sviði, austanhafs og vestan, frá sér sameiginlega yfirlýsingu þar sem þeir báðust undan ógrunduðum fullyrðingum í fjölmiðlum sem oft líkjast meira trúarbrögðum en vísindum," ritar Matthías í Læknablaðinu.

ADHD hrjáir ekki aðeins ungmenni heldur einnig fullorðna. Fullorðnir sem sækja í virka efnið í rítalíni, metlýlfenídat, sem vímugjafa eru stækkandi vandamál. „Þeir nota marga skammta í einu, taka lyfin ekki um munn, heldur sniffa þau eða sprauta í æð og kjósa frekar stuttverkandi lyf en forðalyfin nýju og dýru. Hér má engan afslátt veita og læknar verða að berjast gegn ríkisniðurgreiddri misnotkun," segir Matthías.

Til að sporna við misnotkun rítalíns hefur landlæknisembættið sett fram ítarlegar verklagsreglur um greiningu og meðferð við ADHD.












Fleiri fréttir

Sjá meira


×