Ofvirk ungmenni hætta á rítalíni vegna fordóma Erla Hlynsdóttir skrifar 8. september 2010 11:53 Matthías Halldórsson varar við fordómum í garð þeirra sem þurfa á rítalini að halda „
Baráttuna gegn misnotkun verður að efla, en hún má ekki verða til þess að hindra aðgengi þeirra sem eru með staðfest ADHD og hafa gagn af meðhöndlun einkenna sinna. Það væri að kasta barninu út með baðvatninu," segir Matthías Halldórsson, læknir á geðsviði Landspítala. Hann skrifar ritstjórnargrein í nýjasta hefti Læknablaðsins þar sem hann vekur athygli á því að þrátt fyrir að hægt sé að misnota rítalín séu margir sem þurfa nauðsynlega á lyfinu að halda. Umræðan um mögulega misnotkun rítalíns hefur farið hátt og ýtt undir fordóma í garð þeirra sem nota lyfið að læknisráði. „Fæstir þeirra sem tjá sig á opinberum vettvangi virðast hafa kynnt sér þær miklu rannsóknir sem liggja að baki greiningu og meðferð við ADHD og foreldrar þurfa að sitja undir því að halda dópi að börnum. Undirritaður þekkir dæmi þess að ungmenni hafi viljað hætta á vel heppnaðri lyfjameðferð eingöngu vegna umræðunnar. Svo rammt kvað að sleggjudómum um greiningu og meðferð ADHD að árið 2002 sendu rúmlega 80 af fremstu vísindamönnum heims á þessu sviði, austanhafs og vestan, frá sér sameiginlega yfirlýsingu þar sem þeir báðust undan ógrunduðum fullyrðingum í fjölmiðlum sem oft líkjast meira trúarbrögðum en vísindum," ritar Matthías í Læknablaðinu. ADHD hrjáir ekki aðeins ungmenni heldur einnig fullorðna. Fullorðnir sem sækja í virka efnið í rítalíni, metlýlfenídat, sem vímugjafa eru stækkandi vandamál. „Þeir nota marga skammta í einu, taka lyfin ekki um munn, heldur sniffa þau eða sprauta í æð og kjósa frekar stuttverkandi lyf en forðalyfin nýju og dýru. Hér má engan afslátt veita og læknar verða að berjast gegn ríkisniðurgreiddri misnotkun," segir Matthías. Til að sporna við misnotkun rítalíns hefur landlæknisembættið sett fram ítarlegar verklagsreglur um greiningu og meðferð við ADHD.
Mest lesið Þrír flokkar skipa efstu sætin í nær öllum kjördæmum Innlent Æðsti yfirmaður NASA: „Fylgjandi því að gera Plútó aftur að reikistjörnu“ Erlent Töluverður viðbúnaður lögreglu í Kópavogi Innlent „Í versta falli alvarleg forréttindablinda“ Innlent Leist ekki á tillögu um opnun Hormússunds Erlent „Þetta á náttúrulega ekki að gerast“ Innlent Taldi að vegabréfinu hefði verið stolið við Skógafoss Innlent Handtekinn eftir að rottueitur fannst í barnamat Erlent Katla kjörin forseti Stúdentaráðs Innlent Lífið umturnaðist í kjölfar slyssins Innlent Fleiri fréttir Þrír flokkar skipa efstu sætin í nær öllum kjördæmum „Í versta falli alvarleg forréttindablinda“ Katla kjörin forseti Stúdentaráðs Töluverður viðbúnaður lögreglu í Kópavogi Taldi að vegabréfinu hefði verið stolið við Skógafoss „Þetta á náttúrulega ekki að gerast“ „Mjög gott að við höfum náð að slíðra sverðin“ Vinna að spálíkani til að skima sjálfvirkt fyrir vannæringu Beint: Pallborð Leigjendasamtakanna um húsnæðismál Glapræði að fella niður einu ferð dagsins: „Er öllum sama þó Grímsey fari í eyði?“ Það geti ekki hvaða skip sem er dýpkað í mynni Landeyjahafnar „Flokkur fólksins tekur í rauninni út óánægju með ríkisstjórnina“ Óska þess að ákvörðun um spítalann liggi fyrir sem fyrst Meirihlutinn á þingi fallinn, gremja í Grímsey og risadagur í íþróttunum Gulu hjólunum stillt upp á slysstöðum Verkalýðsfélögin úrelt og þau hefði mátt leggja niður um aldamótin Beittir lögreglutökum eftir ógnandi tilburði í miðbæ Fjöldi viðbragðsbíla kom á vettvang falsboðs Meirihlutinn fallinn og VG á þingi Farfuglar koma marktækt fyrr til landsins en áður „Dapurlegt pólitískt útspil“ Höfðinginn átti sig ekki á lokuninni Myndaveisla: Verkalýðsdagurinn haldinn hátíðlegur Sinueldur í Grafarvogi Þetta sé bæjarstjórn Kópavogs til skammar Framboðum Miðflokksins fjölgar um átta milli kosninga Lífið umturnaðist í kjölfar slyssins Bein útsending: Verkalýðsdagurinn haldinn hátíðlegur Sendi ekki reikning og fær því ekki greitt Langhæsti styrkurinn fer til Eyja Sjá meira