Innlent

Seldi landa í miðborginni - aftur

Í tilkynningu frá lögreglu segir að kona á miðjum aldri hafi verið handtekin í miðborg Reykjavíkur um helgina. Hún er grunuð um að hafa verið að selja landa en í bakpoka hennar fundust allnokkrir brúsar sem innihéldu heimagert áfengi.

Sama kona var einnig handtekin í miðborginni í sumar en þá var hún við sömu iðju.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×