Íslandsbanki skilar hagnaði Þorbjörn Þórðarson skrifar 1. júlí 2010 18:25
Íslandsbanki, sem er nánast að fullu í eigu erlendra kröfuhafa Glitnis, heldur áfram að skila hagnaði, en bankinn hagnaðist um 3,6 milljarða króna á fyrsta ársfjórðungi þessa árs. Bankastjórinn segir bankann vel í stakk búinn að takast á við óvissu vegna dóma Hæstaréttar í bílalánsmálunum sökum sterkrar eiginfjárstöðu. Á síðasta ári í heild sinni skilaði Íslandsbanki tuttugu og fjögurra milljarða króna hagnaði og eiginfjárhlutfallið var rúmlega nítján prósent, sem er þremur prósentustigum yfir því sextán prósenta lágmarki sem Fjármálaeftirlitið setti bankanum. Bankinn birti í dag árshlutauppgjör vegna fyrsta ársfjórðungs þessa árs. Bankinn skilaði 3,6 milljarða króna hagnaði og er tekjuskattur vegna tímabilsins áætlaður 807 milljónir króna. Athygli vekur að Birna Einarsdóttir, bankastjóri Íslandsbanka, segir bankann vel í stakk búinn að mæta þeirri óvissu sem skapast hefur um uppgjör gengistryggðra lána í kjölfar dóma Hæstaréttar í bílalánsmálunum. Í tilkynningu sem bankinn sendi frá sér í dag vegna hinnar jákvæðu afkomu segir Birna að skýringin sé sterk eiginfjárstaða, en eiginfjárhlutfall bankans er nú tæplega 21 prósent, eða fimm prósentustigum yfir því lágmarki sem Fjármálaeftirlitið setti bankanum. Íslandsbanki er að langstærstum hluta í eigu erlendra kröfuhafa Glitnis, en félagið ISB Holding, dótturfélag þrotabús Glitnis, á 95 prósenta hlut í bankanum. Eignarhlutinn er í raun til sölu því skilanefnd Glitnis hefur ráðið svissneska bankann UBS sem ráðgjafa við söluna og er stefnt að því að ljúka söluferlinu innan fimm ára.
Mest lesið Fannst látinn í tjaldi Innlent Lést á Fimmvörðuhálsi Innlent Lamb að svelta í sjálfheldu: „Það endar bara á því að drepast ef enginn kemur“ Innlent Lúther sagður í haldi vegna kókaínsmygls Innlent „Hver vill ganga í gjaldþrota ríkjasamband?“ Innlent Velja Viljandi villt Innlent Hringekjan tekin úr notkun strax eftir slysið Innlent Heimilislausir Píratar leita að nýrri Tortúga Innlent Var til vandræða og reyndist eftirlýstur Innlent Spá sautján stiga hita á höfuðborgarsvæðinu Veður Fleiri fréttir Hamagangur meirihlutans minni á norsku Exit-þættina Einelti kvenna birtist oft með lúmskari hætti „Við erum sáttir“: Gönguhóparnir stóðu fyrir sínu Lamb að svelta í sjálfheldu: „Það endar bara á því að drepast ef enginn kemur“ Töluvert um sameiningar lífeyrissjóða upp á síðkastið Andlát í tjaldi og slys á bæjarhátíð Lést á Fimmvörðuhálsi Hringekjan tekin úr notkun strax eftir slysið „Hver vill ganga í gjaldþrota ríkjasamband?“ Fannst látinn í tjaldi Einkunnagjöf, jarðgangagerð og hagræðingaraðgerðir borgarinnar Velja Viljandi villt Var til vandræða og reyndist eftirlýstur Heimilislausir Píratar leita að nýrri Tortúga Kannski rétt að hverfa frá áformum um nýjan sparkvöll við Landakot Lúther sagður í haldi vegna kókaínsmygls „Fyllerísrugl“ endaði með handtöku og beinbroti Árekstur við afleggjara á Norðurlandi vestra „Hefði mátt koma í veg fyrir enn frekari ótta“ Nýtt app til að finna týndar kisur frumsýnt í dag eftir sex ára þróunarvinnu Rapp og dýrðir í Búðardal Nauðsynlegt að rífa stúkuna sem fyrst Bráð veikindi á Fimmvörðuhálsi Ekið á gangandi vegfaranda við Vík Náði ekki símsambandi og hélt af stað gangandi Með ráðum gert að gefa þjóðinni frí frá pólitíkinni í aðdraganda atkvæðagreiðslunnar Tveir handteknir eftir hópslagsmál Umferðarslys á Suðurlandi, forsætisráðherra um ESB og Laugardalslaug Afturkalla breytinguna gegn gjaldi Líkamsárás og ölvunarakstur Sjá meira