Innlent

Semja við Gaflaraleikhúsið um rekstur til þriggja ára

Hafnarfjörður.
Hafnarfjörður.

Menningar- og ferðamálanefnd Hafnarfjarðarbæjar hefur ákveðið að ganga til samninga við Gaflaraleikhúsið um rekstur leikhúss að Strandgötu 50, til næstu þriggja ára. Leikhúsið Hermóður og Háðvör var þar áður til húsa.

Samkvæmt tilkynningu frá nefndinni þá var ákvörðun hennar byggð á mati á tilboðum og viðtölum við umsækjendur. Sjö leikhópar/rekstraraðilar sóttu um að standa að rekstri leikhúss í Hafnarfirði og ræddu nefndarmenn við alla umsækjendur.

Að Gaflaraleikhúsinu standa Lárus Vilhjálmsson, Björk Jakobsdóttir, Gunnar Björn Guðmundsson, Gunnar Helgason og Ágústa Skúladóttir.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×